Sancho vill ekki snúa aftur til Man Utd - Dumfries vill fara til Man Utd - Chelsea vill Osimhen
   lau 28. maí 2022 08:15
Ívan Guðjón Baldursson
Pochettino: Ég er einbeittur að PSG
Mynd: EPA

Hávær orðrómur segir Mauricio Pochettino og Leonardo vera á leið burt frá PSG í næstu viku.


Ef orðrómurinn er sannur þá virðist eins og Pochettino sjálfur hafi ekki fengið að vita neitt.

„Eins og staðan er í dag þá er ég þjálfari Paris Saint-Germain. Eins og staðan er í dag þá er ég 100% þjálfari PSG, ég er einbeittur að framtíð félagsins," sagði Pochettino við El Partidazo de Cope.

„Ég er samningsbundinn félaginu til júní 2023 og vil halda áfram hérna."

Zinedine Zidane er talinn líklegasti arftaki Pochettino hjá PSG þar sem hans meginmarkmið verður að vinna Meistaradeild Evrópu.


Athugasemdir
banner
banner
banner