Fotbolti.net
28.05.22 - 16:29
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Willum sjóðheitur um þessar mundir

Willum sjóðheitur um þessar mundir
Canon

Mynd: BATE

Willum Þór Willumsson var í byrjunarliði BATE Borisov sem heimsótti Dynamo Brest í Hvítrússnesku deildinni.

Staðan var 2-0 fyrir BATE í hálfleik en eftir tíu mínútna leik í þeim síðari skoraði Willum og tryggði liðinu 3-0 sigur.

Liðið er með sjö sigra og tvö jafntefli í fyrstu níu leikjunum í deildinni. WIllum hefur farið vel af stað en hann er með fjögur mörk og þrjár stoðsendingar. Hann var valinn leikmaður mánaðarins hjá liðinu í síðasta mánuði.

Willum var valinn í landsliðshópinn sem leikur þrjá leiki í Þjóðadeildinni og æfingaleik gegn San Marínó í júní.

Davíð Kristján Ólafsson lék allan leikinn í 1-1 jafntefli Kalmar gegn Mjallby í efstu deildinni í Svíþjóð. Liðið er með 16 stig í fjórða sæti eftir 10 umferðir.

Alex Þór Hauksson lék allan leikinn fyrri Östers sem vann Jonkopings í næst efstu deildinni í Svíþjóð 2-0. Liðið er með 19 stig í þriðja sæti eftir 10 umferðir.

Sjá einnig:
Landsliðshópurinn: Hákon Arnar og Willum í hópnum
Willum valinn leikmaður mánaðarins hjá BATE



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.