Fotbolti.net
28.06.13 - 20:30
Magnús Már Einarsson

Ahmed Elmohamady til Hull (Staðfest)

Ahmed Elmohamady til Hull (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Hull hefur keypt Ahmed Elmohamady frá Sunderland en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.

Þessi 25 ára gamli kantmaður frá Egyptalandi skrifaði undir þriggja ára samning við Hull.

Elmohamady var á láni hjá Hull á síðasta tímabili og hjálpaði liðinu að komast upp í ensku úrvalsdeildina.
,,Það er frábært að vera kominn alfarið hingað, sérstaklega eftir síðasta tímabil,\" sagði Elmohamady.

Elmohamady var hæstánægður eftir að Hull tryggði sér sæti í ensku úrvalsdeildinni í vor eins og má sjá hér að neðan.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.