Arsenal hlustar á tilboð í Jesus - Tottenham reynir við Gallagher - Liverpool orðað við varnarmann Frankfurt
   fös 28. júní 2019 10:48
Elvar Geir Magnússon
AC Milan hent út úr Evrópudeildinni (Staðfest)
AC Milan ekki í Evrópudeildina.
AC Milan ekki í Evrópudeildina.
Mynd: Getty Images
AC Milan tekur ekki þátt í Evrópudeildinni á komandi tímabili þátt fyrir að hafa unnið sér þátttökurétt í henni með því að enda í fimmta sæti í ítölsku A-deildinni.

Þetta er meðal þess sem er niðurstaðan í samkomulagi við UEFA vegna brota AC Milan á reglum um fjármál á árunum 2015-2018.

Reiknað er með að Torino taki sæti í Evrópudeildinni í stað AC Milan.

Bann AC Milan er til eins árs.

AC Milan tók þátt í Evrópudeildinni á síðasta tímabili en komst ekki upp úr riðlakeppninni.
Athugasemdir
banner
banner