Eggert Aron: Þetta er svona 'my signature trick'
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mér líður ógeðslega vel, þetta var geggjað gaman," sagði Eggert Aron Guðmundsson, leikmaður Stjörnunnar, eftir útisigur gegn KR.
Eggert skoraði sigurmark Stjörnunnar þegar rúmur hálftími lifði leiks. Hann kom inn á sem varamaður í leiknum.

„Við héldum áfram að pressa og að lokum skilaði það sér. Það var geggjað að skora auðvitað en mikilvægast var að vinna leikinn bara."
Eggert skoraði með skoti við vítateigslínuna, átti skot framhjá Beiti Ólafssyni sem fór í fjærhornið. Hvað hugsaði Eggert?
„Ég hugsaði bara að ég ætlaði að skora og ég var glaður að ég hafi skorað. Þetta er svona 'my signature trick' en bara að æfa þetta og þá getur maður gert þetta í leikjum."
Eggert er sautján ára gamall og hefur verið í hlutverki hjá Stjörnunni, verið í byrjunarliðinu og komið inn á í nokkrum leikjum.
„Ég er ógeðslega ánægður, ég bjóst ekki við þessu en þeir hafa treyst mér fyrir stóru hlutverki og ég þarf bara að reyna skila því. Þetta er geggjaður hópur, fullt af reyndum leikmönnum sem eru ógeðslega skemmtilegir og ungir leikmenn sem eru að koma upp eins og ég."
Hvernig er að heyra 'Eggert er maðurinn' frá stuðningsmönnum?
„Það er ógeðslega gaman, það er ekki langt síðan ég var þarna í stúkunni og gaman að heyra góða menn tala vel um mann."
Verandi sautján ára og þegar farinn að vekja athygli, er ekkert mál að halda sér á jörðinni og halda honum hjá Stjörnunni?
„Eins og staðan er núna er ég Stjörnumaður og ég held áfram sem slíkur. Ég veit ekki neitt um neitt, ég hef ekki heyrt neitt," sagði Eggert spurður hvort hann vissi um áhuga erlendis.
Sjá einnig:
Verður ekki lengi á Íslandi ef hann heldur svona áfram