Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   þri 28. júní 2022 21:58
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjudeild kvenna: Augnablik sigraði Hauka
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Augnablik 2 - 0 Haukar
1-0 Margrét Brynja Kristinsdóttir ('8, víti)
2-0 Viktoría París Sabido ('72)
Rautt spjald: Rakel Leósdóttir, Haukar ('78)


Augnablik er komið upp í sjötta sæti Lengjudeildarinnar eftir sigur á heimavelli gegn botnliði Hauka.

Margrét Brynja Kristinsdóttir kom Augnablik yfir snemma leiks með marki úr vítaspyrnu og leiddu Kópavogsstúlkur í hálfleik.

Haukum gekk illa að skapa sér færi og tvöfaldaði Viktoría París Sabido forystu heimakvenna með marki á 72. mínútu.

Sex mínútum síðar fékk Rakel Leósdóttir rautt spjald í liði gestanna og tókst tíu Haukum ekki að koma til baka.

Augnablik er með níu stig eftir níu umferðir. Haukar eru með þrjú stig.


Athugasemdir
banner
banner