Dominique Malonga, framherji sem Þór fékk til sín á dögunum er á förum frá félaginu.
Hann kom aðeins við sögu í tveimur leikjum, kom inn á sem varamaður gegn Grindavík þann 16. júli, sat allan tíman á varamannabekknum gegn Gróttu í þar síðustu umferð og var tekinn af velli í hálfleik í síðasta leik gegn Fram.
Hann hefur verið að kljást við erfið meiðsli og telja Þórsarar rétt að senda hann heim. Það er ekki búist við því að þeir sæki sér annan framherja í staðinn.
Þór er í 6. sæti Lengjudeildarinnar með 19 stig eftir 14 leiki.
Athugasemdir