Valgeir Valgeirsson er búinn að spila sinn síðasta leik fyrir HK á þessari leiktíð en hann er á leið til Örebro í Svíþjóð.
Hann lék allan leikinn í 2-1 sigri á Gróttu í kvöld og skilur við liðið á toppi Lengjudeildarinnar.
Valgeir fór á láni og lék með varaliði Brentford á þarsíðustu leiktíð en snéri svo aftur til HK þegar lánsamningnum lauk.
Daði Rafnsson yfirmaður knattspyrnuþróunar hjá HK birti mynd af Valgeir í klefanum eftir leik halda langa kveðjuræðu.
Athugasemdir