Ryan Reynolds hafði samband við markvörð Man Utd

Ryan Reynolds hér til vinstri.

Mynd: Getty Images

Ryan Reynolds hér til vinstri.

Mynd: Getty Images
Hollywood-leikarinn Ryan Reynolds kom sér í samband við Nathan Bishop, markvörð Manchester United, eftir æfingaleik Wrexham og United á dögunum.
Wrexham vann 3-1 sigur á ungu liði Man Utd í æfingaleik í Bandaríkjunum á dögunum. Paul Mullin, markahrókur Wrexham, varð fyrir slæmum meiðslum í leiknum eftir árekstur við Bishop, markvörð Man Utd.
Bishop sendi Mullin afsökunarbeiðni og var mjög miður sín. Phil Parkinson, þjálfari Wrexham, var vægast sagt brjálaður og lét Bishop heyra það.
Reynolds, sem er eigandi Wrexham, var talsvert rólegri en Parkinson er hann hafði samband við Bishop. Samkvæmt The Athletic þá þakkaði Reynolds markverðinum fyrir það hvernig hann kom fram af virðingu eftir atvikið og óskaði hann Bishop alls hins besta fyrir framtíðina.
Bishop fékk símanúmer Mullin í gegnum kollega sinn Ben Foster og hafa þeir verið að spjalla saman. Það er ekkert illt þeirra á milli þrátt fyrir alvarleika meiðslanna.
Það er búist við því að Mullin, sem er algjör lykilmaður fyrir Wrexham, muni missa af byrjun næsta tímabils.

Nathan Bishop.

Mynd: Getty Images