„Ég er mjög ánægður með frammistöðuna eftir fyrstu 30 mínúturnar. Ég er ánægður að fá sigur líka, það er allt of langt síðan við unnum. En ég er mjög ánægður með síðustu 60.“ sagði Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, eftir 4-1 sigur á Aftureldingu í Garðabænum í kvöld.
Lestu um leikinn: Stjarnan 4 - 1 Afturelding
„Mér finnst allt í lagi að lenda undir, auðvitað er þetta ekki mark sem við viljum fá á okkur. Afturelding er með gott lið og frábæran þjálfara, við höfum séð það áður í fleiri leikjum. Allt í lagi að lenda undir en mér fannst við bara hægir og gerðum hlutina ekki eins og við vildum gera þá. En mér fannst við ránka aðeins við okkur og eftir það var það engin spurning og tilfinningin mín var að við myndum klára þetta.“ sagði Jökull.
Hvernig sá Jökull þetta gula spjald sem Axel Óskar fékk í annað sinn í leiknum og þar með rautt?
„Bara gult spjald, það er ekki hægt að kvarta yfir því. Hann fær tvö gul bara réttilega. Ég er ekki búinn að sjá þetta aftur en ég sá atvikið mjög vel og er mjög hissa ef það er hægt að færa einhverja rök gegn því.“
Hvað var farið yfir í hálfleik þar sem það var stórmunur á Stjörnuliðinu í þeim fyrri og seinni.
„Við fórum yfir það hvernig við vildum hafa seinni hálfleikinn. Við gerðum breytingu og breyttum taktískt. Þannig að það virkaði vel. Þeir ströggluðu með að verjast því og ég er mjög ánægður með hvernig við komum í seinni hálfleikinn.“
Hefði Jökull viljað skora fleiri mörk og vinna stærra miðað við færin í seinni hálfleiknum?
„Já ef við getum unnið 5-1 þá vil ég vinna 5-1 en ekki 4-1. En ég held samt að þriggja marka sigur er bara eðlilegt. Þeir fá líka frábært færi. Ég held að þetta sé ekkert óeðlilegt. En auðvitað viljum við vera ruthless í færunum okkar.“
Viðtalið við Jökul má finna í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir