28.08.26
Upphitun fyrir ítalska - Seinni hluti: Himnaríki og helvíti í höfuðborginni
BJÖRN MÁR ÓLAFSSON
Fótbolti.net hitar upp fyrir spennandi tímabil í ítölsku A-deildinni en sérfræðingurinn Björn Már Ólafsson rýnir í öll liðin tuttugu sem eru í deildinni. Það er komið að seinni hlutanum í þessari upphitun en sá fyrri var birtur fyrir viku síðan.
Lazio
Af öllum liðum Serie A er útlitið sennilega hvað verst í herbúðum Lazio. Stuðningsmennirnir eru farnir að mótmæla forsetanum (og þingmanninum) Claudio Lotito sem hefur leitt til þess að aðeins hafa selst um 2 þúsund ársmiðar. Í fyrra seldust nær 30 þúsund. Og hverju skyldu þeir vera að mótmæla? Af nægu er að taka.
Fjármálin eru óreiðukennd og liðið hefur neyðst til að selja sína bestu leikmenn. Miðvörðurinn Mario Gila og markvörðurinn Ivan Provedel fóru í sitt hvort Mílanófélagið og gamla goðsögnin Pedro skrifaði ekki undir nýjan samning. Maurizio Sarri sem vann kraftaverk með klúbbinn í fyrra og skilaði þeim í sjöunda sætið tók við Atalanta og inn kom Gennaro Gattuso sem hefur hingað til ekki átt sannfærandi þjálfaraferil, stuðningsmönnum Lazio til mikillar óánægju.
Þá hefur sumarglugginn hjá þeim bláklæddu minnt á þátt af The Office. Hver leikmaðurinn á fætur öðrum hefur sagt „Takk en nei takk,“ eftirminnilegast var þegar hinn báðefnilegi danski varnarmaður Noah Markmann hafnaði félaginu og ákvað frekar að skrifa undir nýjan samning hjá FC Nordsjælland. Þá eiga varúðarbjöllur að fara af stað. Sóknarmaðurinn Bamba Dieng var fáanlegur á frjálsri sölu, eitthvað sem heillaði Lazio í fjárhagskröggum, en hann féll á læknisprófi svo ekkert varð af því. Botninn tók svo loks úr um miðjan ágúst þegar liðið datt út úr fyrstu umferð Coppa Italia gegn B-deildarliðinu Mantova.
Blikur eru á lofti í ljósbláa hluta Rómarborgar og engu líkara en að Nero sjálfur hafi borið eld að sjálfu Lazio projectinu. Margir telja að ekki sé ólíklegt að Lazio geti sogast niður í fallbaráttuna, sérstaklega ef óánægjan utan vallar fer að teygja sig inn í leikmannahópinn.

„Stuðningsmennirnir eru farnir að mótmæla forsetanum (og þingmanninum) Claudio Lotito.“
Ef ég á að finna eitthvað jákvætt við Lazio liðið þá er miðjusvæðið nokkuð vel mannað með Nicolo Rovella í leikstjórnandahlutverkinu með Davide Frattesi og Kenneth Taylor sér við hlið. Frattesi er kraftmikill ítalskur landsliðsmaður sem náði sér ekki alveg á strik hjá Inter í fyrra á meðan Hollendingurinn Kenneth Taylor sem kom frá Ajax í fyrra kom skemmtilega inn í liðið.
4-3-3 Mandas; Marusic, Sutalo, Provstgaard, Tavares; Rovella, Taylor, Frattesi; Isaksen, Dia, Zaccagni.
Lecce
Suður-Ítalíuliðið Lecce frá hælnum á stígvélinu er að hefja sitt þriðja tímabil í efstu deild sem er það lengsta sem liðið hefur náð að halda sér í röð hinna bestu. En dvöl þeirra lýkur hér því flestir spá því að þeir muni falla. Transfer-séníið Pantaleo Corvino sem á stærsta þáttinn í velgengninni undanfarin ár sem tæknilegur ráðgjafi liðsins er hættur. Hann er maðurinn sem uppgötvaði Valeri Bojinov, Javier Chevanton, Mirko Vucinic, Morten Hjulmand og nú síðast Patrick Dorgu.
Aðeins einn leikmaður hefur verið keyptur í sumar, framherjinn Willem Geubbels sem ætlað er að keppa um stöðuna við Nikola Stulic. Hvorugur hefur sýnt spræka takta það sem af er. Listinn yfir farna er langur, meðal annars okkar Þórir Jóhann Helgason sem er kominn til Venezia á frjálsri sölu.

„ Í byrjun sumars bað hann um fyrirframgreidd laun frá Lecce áður en hann hvarf í heimalandinu Sambíu.“
Mesta höggið er þó að hafa misst Lameck Banda. Þessi snöggi vinstri kantmaður hefur verið einn besti leikmaður liðsins undanfarin ár og á enn ár eftir af samningi sínum við liðið. Í byrjun sumars bað hann um fyrirframgreidd laun frá Lecce áður en hann hvarf í heimalandinu Sambíu og neitaði svo að mæta aftur til æfinga hjá Lecce og er nú á einhvern óskiljanlegan hátt búinn að skrifa undir hjá Al Swehly í Líbýu. Forráðamenn Lecce hafa kært málið til UEFA og virðast í fullum rétti en þetta skemmir verulega fyrir félaginu og var staðan nægilega erfið fyrir.
4-3-3 Falcone; Veiga, Tiago Gabriel, Siebert, Gallo; Ngom, Coulibaly, Gandelman; Pierotti, Geubbels, Banda?
Monza
Hélduð þið að Ivan Juric væri hættur þjálfun eftir þrjú hræðileg þjálfaragigg í röð? Aldeilis ekki. Þessi fyrrum Genoa leikmaður er mættur aftur í Serie-A til nýliðanna Monza sem ákváðu að reka þjálfarann Paolo Bianco sem kom þeim upp úr B-deildinni í fyrra og treysta á rokk-og-ról fótboltann sem Juric predikar.
Monza er ekki lengur í eigu Silvio Berlusconis eða hans dánarbús. Leikmannahópurinn er heldur ekkert sérstaklega spennandi og sterkustu leikmenn liðsins eru í besta falli miðlungsleikmenn í A-deildinni. Maðurinn sem elskar pizzu og pasta, Patrick Cutrone, er þekktasta nafnið en hann á að leiða framlínuna með alla sína 183 sentimetra af vinnusemi og tryllingi. Matteo Pessina sem varð Evrópumeistari með Ítalíu árið 2021 stýrir miðjunni og Andrea Colpani á að vera heilinn á bakvið sóknarleikinn. Colpani er með afar fágaðan vinstri fót en vinnusemin og yfirferðin sæmir ekki leikmanni í liði sem mun þurfa að berjast fyrir lífi sínu.

„Hélduð þið að Ivan Juric væri hættur þjálfun eftir þrjú hræðileg þjálfaragigg í röð?“
3-3-2-1 Thiam; Kouadio, Lucchesi, Carboni; Birindelli, Pessina, Akinsanmiro, Mandas; Colpani, Cutrone; Varela.
Napoli
Antonio Conte lét af störfum sem þjálfari í sumar en þeir leikmenn sem vonuðust eftir léttleikandi sóknarþjálfara hafa væntanlega fengið morgun cornetto-ið í hálsinn þegar tilkynnt var um að Max Allegri hafi verið ráðinn. Allegri hefur lítinn áhuga á fagurfræði íþróttarinnar og stigin þrjú eru allt það sem skiptir máli. Það sem Allegri þó er talinn hafa fram yfir Conte er að hann er auðveldari í umgengni og nær vel til leikmanna, þar með talið stjarnanna.
Fyrir síðasta tímabil sótti félagið Kevin De Bruyne sem náði sér ekki á strik vegna meiðsla, og hópurinn reyndist of þunnur til þess að geta barist á öllum vígstöðum. Frammistaða Napoli í Meistaradeildinni bar þess keim en liðið komst ekki einu sinni upp úr riðlinum.
Í sumar hefur liðið unnið að því að styrkja breiddina með Benoit Badiashile í vörnina, Costatino Favasuli átti frábært tímabil á láni í B-deildinni í fyrra og er ætlað að taka við hægri bakvarðarstöðunni af Giovanni Di Lorenzo þegar fram líða stundir.

„Fyrir síðasta tímabil sótti félagið Kevin De Bruyne sem náði sér ekki á strik vegna meiðsla.“
Miðjan er afar vel mönnuð með De Bruyne, McTominay, Anguissa og Lobotka og í sókninni munu þeir Alisson Santos, Matteo Politano, David Neres og stóra upphrópunarmerki síðasta tímabils Antonio Vergara styðja við bakið á Rasmus Höjlund sem ekki keppir lengur við Romelo Lukaku um framherjastöðuna.
Napoli hefur unnið tvo titla undanfarin þrjú ár en raunverulegi styrkur liðsins hefur verið stöðugleikinn undanfarinn áratug. Erfitt er að ímynda sér að liðið detti út úr topp 4 en á sama tíma virðist Internazionale vera heilsteyptara lið með stærra vopnabúr í sóknarleiknum.
Parma
Parma er sennilega það lið sem hefur orðið fyrir mestu blóðtökunni í sumar. Markvörðurinn Zion Suzuki sem bjargaði mörgum stigum fyrir liðið í fyrra er farinn til Aston Villa. Tveir reynslulitlir markmenn munu berjast um byrjunarliðssætið sem hann skilur eftir sig. Framherjinn stæðilegi Mateo Pellegrino var seldur til Fiorentina og ástralski miðvörðurinn Alessandro Circati fór til Benfica eftir góðar frammistöður á HM í sumar. Peningarnir sem komu inn hafa enn ekki skilað sér í nýjum leikmönnum svo telja megi.
Til að forðast fall stendur því allt og fellur með hinum unga spænska þjálfara Carlos Cuesta sem á fortíð í þjálfarateymi Mikel Artetas hjá Arsenal. Nokkrir spennandi leikmenn eru í hópnum, Adrian Bernabe er stærsta sóknarstjarna liðsins á hægri kantinum og framherjinn El Bilal Toure hefur sýnt það að hann getur skorað mörk. Sá leikmaður sem ég vil samt nefna sérstaklega hér er hinn átján ára vinstri kantmaður Simone Lontani sem kemur frá AC Milan á frjálsri sölu. Lontani skoraði tvö mörk fyrir Parma í frumraun sinni í bikarnum og er einn mest spennandi leikmaður deildarinnar. Hann er með mikinn hraða og er frábær sóknarlega einn á einn.

„Adrian Bernabe er stærsta sóknarstjarna liðsins á hægri kantinum.“
Ef Parma styrkir sig ekki fyrir lok gluggans er líklegt að þetta verði langt og erfitt tímabil í baráttu við falldrauginn.
4-3-3 Daffara; Delprato, Troilo, Ndiaye, Valeri; Bernabe, Konate, Ordonez; Keita, Bilal Toure, Lontani.
Roma
Gasperini er nú að hefja sitt annað tímabil sem þjálfari Roma og liðið er farið að taka á sig þá mynd sem maður þekkti frá Atalanta-tímabili hans. Stóru fréttirnar í sumar eru að Roma heldur í sína sterkustu leikmenn, þökk sé Meistaradeildarsætinu sem liðið tryggði sér í síðustu umferð.
Vandræðin hjá Roma undanfarin 10 ár hefur verið vinstra megin í sókninni og þau vandræði halda áfram í sumar. Félagið gerði tilboð í Mason Greenwood, Crysencio Summerville, Antonio Nusa og Alejandro Garnacho en nú undir lok gluggans er enginn heinræktaður réttfættur vinstri kantmaður í hópnum. En að öðru leiti er hópurinn ógnarsterkur. Paulo Dybala er orðinn heill aftur og hefur spilað nær allar mínúturnar í æfingaleikjum sumarsins eftir að hafa framlengt samning sinn um eitt ár með 70% launalækkun. Donyel Malen kom eins og stormsveipur inn í deildina í janúar og verður væntanlega við sama heygarðshornið í vetur.

„Dybala er orðinn heill eftir að hafa framlengt samning sinn með 70% launalækkun.“
Mest spennandi kaupin eru kaupin á portúgalska ungstirninu Rodrigo Mora frá Porto. Þessi 19 ára sóknarsinnaði miðjumaður getur spilað vinstra megin í sókninni þótt hann sé ekki raunverulegur kantmaður og Gasperini hefur hrifist mjög af honum á fyrstu vikum hans í höfuðborginni.
Breiddin er orðin meiri og ætti því að vera hægt að gera atlögu að deildartitlinum án þess að þurf að fórna Meistaradeildinni. Þótt Roma hafi ekki leikið í Meistaradeildinni undanfarin sjö ár þá hefur félagið gert það gott bæði í Evrópudeildinni og Sambandsdeildinni og Gasperini er öllum hnútum kunnugur þegar kemur að því að leggja upp Evrópuleiki gegn sterkum andstæðingum. Evrópukvöldin á Stadio Olimpico geta því vel boðið upp á óvænta sigra.
3-4-2-1 Svilar; Mancini, Ndicka, Hermoso; Molina, Cristante, Kone, Wesley; Mora, Dybala; Malen.
Sassuolo
Alberto Aquilani tekur við af Fabio Grosso sem þjálfari Sassuolo. Það kemur kannski mörgum á óvart að hann skuli hafa gerst þjálfari eftir að ferlinum lauk þar sem hann hafði ekkert sérstaklega gaman af æfingum þegar hann var leikmaður, þótti jafnvel nokkuð latur. En Aquilani þykir mikið þjálfaraefni, vann Primavera titil (u20 titilinn) með unglingaliði Fiorentina og var nálægt því að koma Catanzaro upp í efstu deild í fyrra. Hann spilar sóknarsinnaðan fótbolta fellur því eins og flís við rass við gildi þeirra grænklæddu.

„Armand Lauriente og Domenico Berardi eru tryggingin fyrir því að þeir muni halda sér uppi án teljandi vandræða.“
Byrjunarliðið er lítið breytt frá síðasta tímabili. Miðvörðurinn Tarik Muharemovic sló rækilega í gegn í fyrra og var seldur á háa upphæð til Leeds. Hans skarð er Cas Odenthal ætlað að fylla. Rafael Obrador er kominn í vinstri bakvörðinn en hann er spænskur u21 árs landsliðsmaður. Á miðjuna kemur Vasilije Adzic frá unglingaliði Juventus sem mun krydda sóknarleikinn ásamt Christian Volpato sem átti gott HM með Áströlum í sumar. Nemanja Matic og Kristian Thorstvedt eru myndarlegt miðjupar. En það er svo á köntunum sem stórstjörnunar spila. Armand Lauriente og Domenico Berardi eru þeir sem eiga að skora mörkin og eru tryggingin fyrir því að þeir muni halda sér uppi án teljandi vandræða.
4-3-3 Muric; Walukiewicz, Idzes, Odenthal, Obrador; Matic, Thorstvedt, Adzic; Berardi, Bowie, Lauriente.
Torino
Mest óspennandi lið deildarinnar undanfarin ár og lítil breyting þar á milli ára. Þjálfarinn er nýr, gamli hægri bakvörður AC Milan Ignazio Abate er tekinn við eftir að hafa unnið kraftaverk með Juve Stabia í fyrra í B-deildinni. En það er mikill munur á Juve Stabia (frá Castellammare di Stabia, í útjaðri Napoli) og Torino. Torino er sögulega séð stór klúbbur með myndarlega innviði og stuðningsmenn eru orðnir langþreyttir á meðalmennsku. En leikmannahópurinn sem Abate fær í hendurnar er ekki byggður fyrir annað en meðalmennsku. Giovanni Simeone er stórstjarna liðsins, án þess þó að vera sérstaklega markheppinn. Honum til aðstoðar í fremstu víglínu er Skotinn Che Adams sem hefur sýnt nokkuð lipra takta, en hefur þó sín takmörk.
Pietro Comuzzo er kominn í miðvörðinn frá Fiorentina en þessi efnilegi leikmaður sem var eftirsóttur um alla Evrópu í fyrra átti hörmulegt tímabil með Flórensarklúbbnum og vonast eftir endurfæðingu í Tórínó. Tvo spennandi leikmenn er að finna í liðinu. Alessio Cacciamani er efnilegur vinstri vængbakvörður og sló í gegn í fyrra með Juve Stabia undir stjórn einmitt Abates. Þá er hinn 21 árs sænsi sóknarmaður Alieu Njie afar spennandi og mörg stórlið nú þegar með hann til skoðunar. Ef þessir ungu leikmenn ná að taka næsta skref undir Abate verður tímabilið þægileg meðalmennska fyrir þá vínrauðu en það þarf ekki mikið að fara úrskeiðis til að fallbarátta verði raunin.

„Giovanni Simeone er stórstjarna liðsins, án þess þó að vera sérstaklega markheppinn. “
3-4-2-1 Paleari; Coco, Ismajli, Comuzzo; Fortini, Casadei, Gineitis, Cacciamani; Njie, Vlasic; Simeone.
Udinese
Loksins loksins. Mikið var. Eftir mörg ár af meðalmennsku hefur liðið undir stjórn Kosta Runjaic síðustu tvö ár tekið við sér og er nú hörkulið sem er erfitt heim að sækja á Bluenergy Stadium í Udine. Í fyrra byrjaði liðið tímabilið frábærlega og endaði að lokum í 10. sæti með fullt af spennandi leikmönnum sem flestir eru áfram hjá félaginu. Arthur Atta var vissulega seldur til Fiorentina en Nicolo Zaniolo er áfram í fremstu línu og Oumar Solet stýrir vörninni.
Liðið býr yfir mikilli baráttu og líkamlegum styrk, og sniðug kaup í sumar hafa að minnsta kosti tryggt stöðugleika. Jurgen Ekkelenkamp er solid miðjumaður í Serie-A og skorar alltaf sín mörk úr langskotum og Mergim Vojvoda í hægri vængbakverði átti gott tímabil með Como í fyrra.
Venju samkvæmt hafa nokkrir ungir efnilegir leikmenn verið sóttir sem lítið er vitað um auk þess sem liðið hefur skipst á leikmönnum við Watford þar sem sömu eigendur eiga þessi tvö félög. Skuli eitt eða tvö ungstirnanna slá í gegn getur Udinese verið með í baráttunni um neðstu Evrópusætin en nær engar líkur eru á að liðið dragist niður í fallbaráttuna.

„Nicolo Zaniolo er áfram í fremstu línu.“
3-5-2 Okoye; Bertola, Kabasele, Solet; Vojvoda, Ekkelenkamp, Karlström, Pietrowski, Kamara, Zaniolo, Davis.
Venezia
Íslendingaliðið losaði sig við hinn trygga Bjarka Stein Bjarkason í sumar sem var seldur til Sudtirol en gat auðvitað ekki farið inn í tímabilið án Íslendings og var því Þórir Jóhann Helgason sóttur á frjálsri sölu frá Lecce. Venezia vann B-deildina í fyrra og hefur fjárfest mikið í sumar undir stjórn Francesca Bodie sem var kjörin forseti félagsins í júní og er sem stendur eini kvenkyns forsetinn í deildinni. Framherjinn Akor Adams var sóttur á heilar 16 milljónir evra frá Sevilla og liðið var (á ótrúlegan hátt) orðað við Orra Stein Óskarsson. Armel Bella-Kotchap styrkir vörnina og Toma Basic frá Lazio getur gefið miðjunni nýja vídd.
Vonandi fær Þórir Jóhann spiltíma hjá liðinu en hann er líklegast að keppa um áttustöðuna við Spánverjann Kike Perez sem líkt og Þórir er með góðan hægrifót sem á að skila stoðsendingum á framherjana. Þórir hefur hins vegar fengið lítinn spiltíma í síðust æfingaleikjum fyrir mót en við vonumst til að hann vinni sig inn í liðið sem mun berjast fyrir lífi sínu í deildinni.
Markvörðurinn Filip Stankovic, sonur Dejans, er frábær markvörður og er sérstaklega þekktur fyrir að vera góður að verja langskot, eitthvað sem gárungar vilja tileinka uppeldi hans og auðvelt er að sjá fyrir sér Dejan gamla munda fallbyssufótinn úti í garði með næstyngsta soninn í markinu.

„Þórir Jóhann Helgason var sóttur á frjálsri sölu frá Lecce.“
Þrátt fyrir fjárfestingarnar er gæðunum í liðinu misdreift og það blasir fátt annað við en fallbarátta.
3-5-2 Stankovic; Moreno, Bella-Kotchap, Schingtienne; Correira, Basic, Busio, Perez, Haps; Yeboa, Adams.

TENGT EFNI