Heimild: mbl.is
Íslenska kvennalandsliðið tapaði gegn því sænska í úrslitaleik um toppsæti undanriðils fyrir lokakeppni EM.
Tapið þýðir að íslenska liðið á ekki lengur möguleika á að vinna riðilinn en getur enn endað í öðru sæti. Þrjú stigahæstu liðin sem enda í 2. sæti síns riðils fara beint í lokakeppnina. Hin sex liðin í 2. sæti fara í umspil.
„Mér fannst við koma ákveðnar til leiks og við erum að spila mjög flottan leik þangað til þær skora. Það var vont að fá þetta mark á okkur en við eigum að bregðast betur við því," sagði Ingibjörg Sigurðardóttir, sem lék allan leikinn í hjarta varnarinnar, við Jóhann Inga Hafþórsson á mbl.is eftir leikinn.

Ingibjörg er ekki í neinum vafa um að Ísland verði á meðal þátttökuþjóða á EM sem haldið verður á Englandi. Íslenska liðið á eftir leiki við Slóvakíu og Ungverjaland á útivelli í lok nóvember og byrjun desember.
„Sænska liðið var alltaf líklegast til að fara beint á EM og við vissum það alveg en við gerðum allt hvað við gátum til að vinna þær. Möguleikarnir okkar eru enn góðir og það eru tveir leikir eftir sem við þurfum að klára. Við erum alltaf að fara á EM, það er alveg á hreinu,“ sagði Ingibjörg við mbl.is
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir