Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 28. október 2022 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Hlynur og Guðni framlengja við FH
Mynd: FH/Facebook

Bræðurnir Guðni og Hlynur Eiríkssynir hafa framlengt samninga sína en þeir verða þjálfarar kvennaliðs FH næstu tvö árin.


Liðið vann Lengjudeildina með glæsibrag í sumar og mun spila í Bestu Deildinni næsta sumar. Liðið var ósigrað í deildinni í sumar.

Guðni hefur stýrt liðinu frá 2018 en hann fékk bróður sinn til að aðstoða sig í fyrra.

Tilkynningin frá FH

Mikil gleði. Mikið stuð! Það er okkur FH-ingum sönn ánægja að tilkynna að þeir bræður Guðni og Hlynur Eiríkssynir hafa framlengt samninga sína sem þjálfarar meistaraflokks kvenna til næstu tveggja ára.

FH liðið okkar fór með glans upp í Bestu Deildina með því að fara ósigrað í gegnum Lengjudeildina, spilandi skemmtielgan sóknarbolta. Vegferð okkar FH-inga í kvennaboltanum er rétt að byrja og erum við öll mjög spennt að sjá liðið okkar takast á við Bestu Deildina. 


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner