Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 28. nóvember 2021 15:23
Aksentije Milisic
Guardiola: Held að ég muni ekki þjálfa annað lið á Englandi
Mynd: EPA
Pep Guardiola, stjóri Englandsmeistara Manchester City, hefur gefið það út að hann mun að öllum líkindum ekki þjálfa annað lið á Englandi á sínum ferli.

Guardiola tók við Manchester City árið 2016 og unnið fullt af titlum fyrir félagið. Hann á hins vegar enn eftir það vinna þann stærsta, Meistaradeild Evrópu.

„Mig langar að þjálfa landslið, mig langar að finna gleðina sem fylg­ir því að fara á Evr­ópu­mót og heims­meist­ara­mót," sagði Pep.

„Á Englandi þá held ég að það verði alltaf City. Ég held að ég muni ekki þjálfa annað lið á Englandi."

Samningur Pep við Manchester City rennur út árið 2023 en Guardiola segist ekki vita hvað gerist í framtíðinni.

Þessa stundina er í gangi leikur Manchester City og West Ham í ensku úrvalsdeildinni.


Athugasemdir
banner
banner