Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 28. desember 2020 09:09
Magnús Már Einarsson
Sveindís Jane til Wolfsburg (Staðfest) - Lánuð til Kristianstad
Sveindís Jane Jónsdóttir.
Sveindís Jane Jónsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sveindís fagnar marki í sumar.
Sveindís fagnar marki í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sveindís er uppalin hjá Keflavík.
Sveindís er uppalin hjá Keflavík.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þýska stórliðið Wolfsburg hefur keypt íslensku landsliðskonuna Sveindísi Jane Jónsdóttur frá Keflavík. Sveindís verður á láni hjá Kristianstad í Svíþjóð á næsta tímabili áður en þar er Elísabet Gunnarsdóttir við stjórnvölin.

Hin 19 ára gamla Sveindís sló í gegn með íslenska landsliðinu á þessu ári. Sveindís var á láni hjá Breiðabliki í sumar þar sem hún varð Íslandsmeistari.

Wolfsburg er ríkjandi meistari í Þýskalandi en liðið tapaði gegn Lyon í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í ár. Sara Björk Gunnarsdóttir, landsliðsfyrirliði, spilaði með liðinu áður en hún gekk til liðs við Lyon í sumar.

Sveindís gerði samning við Wolfsburg sem gildir til sumarsins 2024.

„Sveindís er hæfileikaríkur leikmaður sem hefur allt sem þarf til að standa sig hjá félagi í stóru deildunum í Evrópu. Það fór ekki framhjá öðrum félögum sem sýndu einnig áhuga. Það gerir okkur ennþá ánægðari með að Sveindís hafi valið okkur," sagði Ralf Kellermann, yfirmaður íþróttamála hjá Wolfsburg,

„Með því að lána hana til toppliðs í Svíþjóð til að byrja með þá erum við að leyfa henni að vaxa og öðlast reynslu á meðal þeirra bestu."

Tilkynning frá Keflavík
Knattspyrnudeild Keflavíkur og þýska stórliðið Wolfsburg hafa komist að samkomulagi um vistaskipti Sveindísar Jane Jónsdóttur til þýska liðsins. Sveindís sem er eingöngu 19 ára gömul vakti ung athygli á knattspyrnuvellinum og hefur verið einn besti leikmaður íslandsmótsins síðustu ár.

Hún hóf feril sinn hjá Keflavík og lék sína fyrstu leiki í meistaraflokki einungis 14 ára gömul. Á síðasta tímabili eftir að Keflavíkurliðið féll úr efstu deild fór hún á láni til Breiðabliks sem spilar í efstu deild og var einn allra besti leikmaður liðsins og mótsins er það varð íslandsmeistari. Í sumar spilaði hún 17 leiki í deild og bikar og skoraði í þeim 15 mörk. Alls hefur Sveindís spilað 97 leiki í meistaraflokki og skorað í þeim 69 mörk. Þá lék hún sína fyrstu A landsleiki á árinu en alls hefur hún leikið 5 leiki með A landsliðinu og skorað í þeim 2 mörk. Auk þess hefur hún leikið 41 leik með yngri landsliðum Íslands og skorað í þeim 24 mörk.
Wolfsburg er með sterkari liðum í Evrópu og eru ríkjandi deildar- og bikarmeistarar í Þýskalandi. Þá tapaði liðið naumlega fyrir Lyon í úrslitum meistaradeildarinnar á síðasta tímabili en liðið hefur 5 sinnum komist í úrslit meistaradeildinnar síðan 2012 og unnið hana tvisvar.

Sigurður Garðarsson formaður knattspyrnudeildar Keflavíkur: „Það er frábært að Sveindís sé að ná að láta drauminn rætast og semja við eitt af sterkustu knattspyrnuliðum heims. Hún hefur svo sannarlega unnið fyrir því og við keflavíkingar höfum lengi verið þess fullviss að hún myndi ná langt. Sveindís er sannur Keflvíkingur og frábær fyrirmynd fyrir yngri leikmenn og ekki síst þann gríðarlega mikla fjölda stúlkna sem nú æfir með yngri flokkum hjá okkur. Hún hefur verið reglulegur gestur í félagsheimilinu og á vellinum að hvetja stelpurnar áfram í allt sumar þó hún hafi farið á láni til Breiðabliks. Við munum fylgjast spennt með framgangi Sveindísar og erum þess fullviss að hún verður landi og þjóð til sóma bæði innan og utan knattspyrnuvallarins á næstu árum“.

Benedikta Benediktsdóttir formaður kvennaráðs knattspyrndeildar Keflavíkur: „Við erum ótrúlega stolt af Sveindísi. Hún er frábær leikmaður og frábær stelpa í alla staði. Það er búið að vera ótrúlega gaman að fylgjast með henni taka út sinn þroska hér í Keflavík og verða að þeim leikmanni sem hún er í dag. Hún er einn allra efnilegasti leikmaður sem við höfum séð hérna á Íslandi sem sést vel á því að stórlið eins og Wolfsburg vilji fá hana til sín. Það er verður spennandi að fylgjast með henni í Þýskalandi og ekki síður með landsliðinu á næstu árum.“

Jónas Guðni Sævarsson, framkvæmdarstjóri: „Þessi vistaskipti Sveindísar til Wolfsburg eru með þeim stærri sem við höfum séð í íslenskum fótbolta frá upphafi. Wolfsburg eru ríkjandi þýskalandsmeistarar og léku í úrslitaleik meistaradeildarinnar í fyrra. Við keflvíkingar erum ótrúlega stolt af henni. Hún hefur verið með okkur frá því að hún byrjaði í fótbolta og hefur, þrátt fyrir ungan aldur spilað fjölmarga leiki í meistaraflokki. Starfið í kringum kvennaliðið hefur verið eflt alveg gríðarlega síðustu ár og það hefur verið mikil aukning iðkenda stúlkna megin samhliða því. Það er ekki síst vegna þess góða starfs sem unnið hefur verið af núverandi stjórn og okkar öfluga kvennaráði sem brennur fyrir því að búa til eins góða umgjörð og kostur er utan um stelpurnar okkar. Þá má ekki gleyma hlutverki þjálfarans Gunnars Magnúsar og Hauks , sem var aðstoðamaður hans, sem hafa byggt upp góð lið og gert leikmönnum eins og Sveindísi tækifæri til að blómstra. Keflavík er eitt af fáum liðum sem er með meistaraflokka karla- og kvenna í efstu deild og það er mikilvægt til að viðhalda áhuga og halda áfram að rækta gott fótboltafólk og manneskjur eins og hana Sveindísi.“
Athugasemdir
banner
banner
banner