Fotbolti.net
29.01.25 - 12:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Luke Shaw með á æfingu í fyrsta sinn í langan tíma

Luke Shaw.

Luke Shaw.

Canon

Mynd: Getty Images

Luke Shaw mætti í dag á sína fyrstu æfingu með Manchester United síðan í desember.

Þessi 29 ára gamli vinstri bakvörður hefur aðeins spilað þrjá leiki á yfirstandandi tímabili en hann hefur í gegnum tíðina verið mjög óheppinn með meiðsli.
Hann hefur ekki spilað leik síðan 1. desember síðastliðinn.

Síðasti byrjunarliðsleikur Shaw var með enska landsliðinu á Evrópumótinu síðasta sumar.

Það á eftir að koma í ljós hvort að Shaw fari með Man Utd til Rúmeníu í leik gegn Steaua Búkarast í Evrópudeildinni. Sá leikur er á fimmtudaginn.

Man Utd er að ganga frá kaupum á nýjum vinstri bakverði, Patrick Dorgu, sem kemur frá Lecce á Ítalíu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.