Knattspyrnusérfræðingurinn Gary Neville naut þess í botn þegar hann fylgdist með Liverpool tapa 3-0 fyrir fallbaráttuliði Watford í dag.
Neville birti myndbönd af sér á Twitter þar sem hann segir Liverpool vera að klúðra titlinum eins og hefur gerst nokkrum sinnum áður.
Neville er augljóslega að grínast, enda lítill sem enginn möguleiki á því að Liverpool missi niður 22 stiga forystu þegar ellefu umferðir eru eftir af tímabilinu.
Liverpool var með 26 sigra og 1 jafntefli fyrir leikinn í dag og bjuggust margir við því að lærisveinar Jürgen Klopp færu í gegnum tímabilið ósigraðir, líkt og Arsenal gerði 2003-04.
Athugasemdir