29.03.20 - 20:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Lögreglan vill ná tali af Grealish vegna umferðaróhapps

Jack Grealish er fyrirliði Aston Villa.

Mynd: Getty Images

Jack Grealish er fyrirliði Aston Villa.

Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn öflugi, Jack Grealish, gæti verið búinn að koma sér í vandræði.
Enskir fjölmiðlar greina frá því í kvöld að lögreglan í Birmingham bíði eftir því að ná tali af ökumanni á hvítum Range Rover sem klessti á tvo kyrrstæða bíla fyrir hádegið í dag.
Ökumaðurinn er talinn hafa verið Jack Grealish. Mynd af Grealish nálægt staðnum sem atvikið átti sér stað gengur nú á milli manna á samfélagsmiðlum, þessi mynd þykir ýta frekar undir það að þarna hafi Grealish verið að verki.
Í tilkynningu frá lögreglunni í Birmingham segir: „Ökumaðurinn skildi eftir upplýsingar hjá almennum borgara á vettvangi áður en hann gekk í burtu, lögreglan mun ræða við hann. Minni háttar skemmdir eru á ökutækjunum og lögreglan rannsakar nú málið, ef einhver býr yfir upplýsingum um atvikið er viðkomandi beðinn um að hafa samband."
Aston Villa er nú að reyna ná í Grealish sem er fyrirliði liðsins en hann svarar engum símtölum og ekki er vitað hvar hann er niðurkominn.