Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
fimmtudagur 25. apríl
Mjólkurbikar karla
þriðjudagur 16. apríl
Meistarar meistaranna konur
mánudagur 15. apríl
Besta-deild karla
föstudagur 12. apríl
Besta-deild karla
þriðjudagur 9. apríl
Undankeppni EM kvenna
mánudagur 8. apríl
Besta-deild karla
föstudagur 5. apríl
Undankeppni EM kvenna
mánudagur 1. apríl
Meistarar meistaranna
sunnudagur 31. mars
Enska úrvalsdeildin
föstudagur 29. mars
Úrslitaleikur Lengjubikars kvenna
miðvikudagur 27. mars
Úrslitaleikur Lengjubikarsins
þriðjudagur 26. mars
Umspilsleikur um EM sæti
U21 karla - EM 25 undankeppni
fimmtudagur 21. mars
EM umspilið
miðvikudagur 20. mars
Lengjubikar karla - Undanúrslit
sunnudagur 10. mars
Enska úrvalsdeildin
þriðjudagur 27. febrúar
Landslið kvenna - Þjóðadeild umspil
föstudagur 23. febrúar
fimmtudagur 1. febrúar
Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins
fimmtudagur 18. janúar
Vináttulandsleikur
sunnudagur 14. janúar
fimmtudagur 14. desember
Sambandsdeild UEFA
föstudagur 8. desember
Úrslitaleikur Bose-mótsins
þriðjudagur 5. desember
Þjóðadeild kvenna
mánudagur 4. desember
Umspil fyrir HM U20
föstudagur 1. desember
Þjóðadeild kvenna
fimmtudagur 30. nóvember
Sambandsdeild UEFA
sunnudagur 19. nóvember
Undankeppni EM
fimmtudagur 9. nóvember
Sambandsdeild UEFA
þriðjudagur 31. október
Landslið kvenna - Þjóðadeild
föstudagur 27. október
fimmtudagur 26. október
Sambandsdeild UEFA
miðvikudagur 18. október
Forkeppni Meistaradeildar kvenna
þriðjudagur 17. október
Undankeppni EM
föstudagur 13. október
þriðjudagur 10. október
Meistaradeild kvenna
sunnudagur 8. október
Besta-deild karla - Efri hluti
fimmtudagur 5. október
Sambandsdeild UEFA
mánudagur 2. október
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 1. október
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 29. september
Fótbolti.net bikarinn
þriðjudagur 26. september
Landslið kvenna - Þjóðadeild
mánudagur 25. september
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 24. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
laugardagur 23. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
Fótbolti.net bikarinn
föstudagur 22. september
Landslið kvenna - Þjóðadeild
fimmtudagur 21. september
Sambandsdeildin
miðvikudagur 20. september
Besta-deild karla - Efri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
Besta-deild karla - Neðri hluti
mánudagur 18. september
sunnudagur 17. september
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
fimmtudagur 18. apríl
Engin úrslit úr leikjum í dag
mið 29.mar 2023 13:10 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

Hefur tekið rosalega mikið á fyrir heilann

Miðjumaðurinn Sindri Snær Magnússon á mjög svo áhugaverðan fótboltaferil að baki hér á Íslandi. Ferillinn hófst í Breiðholti þar sem hann fékk smjörþefinn af því að æfa undir stjórn Ásgeirs Elíassonar heitins. Sindri er í dag mikilvægur póstur í liði Keflavíkur sem kom mjög á óvart í fyrra. Samhliða fótboltanum er Sindri í krefjandi starfi sem vefforritari.

Sindri í leik með Keflavík á undirbúningstímabilinu.
Sindri í leik með Keflavík á undirbúningstímabilinu.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Starfar sem vefforritari með fótboltanum.
Starfar sem vefforritari með fótboltanum.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Ég er hátækniverkfræðingur að mennt og varð óvænt forritari'
'Ég er hátækniverkfræðingur að mennt og varð óvænt forritari'
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sindri hér í leik með ÍR.
Sindri hér í leik með ÍR.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fór í Breiðablik og fór þaðan í Keflavík þar sem hann spilaði 2014 og 2015.
Fór í Breiðablik og fór þaðan í Keflavík þar sem hann spilaði 2014 og 2015.
Mynd/Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Á góðri stundu í Vestmannaeyjum.
Á góðri stundu í Vestmannaeyjum.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Með boltann í leiknum þar sem ÍBV varð bikarmeistari.
Með boltann í leiknum þar sem ÍBV varð bikarmeistari.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfaði Sindra í ÍA.
Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfaði Sindra í ÍA.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í leik með Skagamönnum.
Í leik með Skagamönnum.
Mynd/Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
ÍA bjargaði sér á ótrúlegan hátt árið 2021.
ÍA bjargaði sér á ótrúlegan hátt árið 2021.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sindri sneri aftur í Keflavík fyrir síðasta tímabil.
Sindri sneri aftur í Keflavík fyrir síðasta tímabil.
Mynd/Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir
Keflavík kom á óvart í fyrra.
Keflavík kom á óvart í fyrra.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Selma Sól Magnúsdóttir er systir Sindra.
Selma Sól Magnúsdóttir er systir Sindra.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hvað gera Sindri og Keflavík í ár?
Hvað gera Sindri og Keflavík í ár?
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Í dag er ég vefforritari. Ég er að vinna við alls konar hönnun, hvort sem það er uppsetning á vefjum, á vefkerfum eða hugbúnaðarsmíði. Ég er að vinna hjá fyrirtæki sem er staðsett í Keflavík. Það gerðist óvænt í janúar á þessu ári. Ég færði mig hingað og fór að gera eitthvað alveg nýtt. Ég var búinn að vera forrita í Microsoft kerfi síðustu sex ár á undan hjá fyrirtækjum eins og Advania og Origo. Svo færði ég mig hingað núna og ákvað að prófa eitthvað alveg nýtt, fara í vefforritun. Það er alvöru skóli, hefur verið helvíti erfitt," segir Sindri Snær í samtali við Fótbolta.net en fyrirtæki hans er í samstarfi við Blue Car Rental, einn af styrktaraðilum Keflavíkur.

„Þetta er flókin vinna, sérstaklega fyrir mig. Ég er ekki með bakgrunn í þessari forritun. Ég lærði allt annað í skóla. Síðan í desember hefur þetta verið alvöru lærdómur og vinnan hefur tekið rosalega mikið á fyrir heilann. Þetta er hins vegar búið að vera ógeðslega gaman. Ég er að nálgast það að ná tökum á þessu, þetta er að detta inn. Það er enn smá í land sem er eðlilegt þegar maður er að læra eitthvað nýtt."

„Ég held að ég hafi ætlað að verða tannlæknir þegar ég var yngri."

Sindri lærði hátækniverkfræði í háskóla og inn í því námi lærði hann forritun.

„Ég er hátækniverkfræðingur að mennt og varð óvænt forritari. Ég tók mikið af valfögum í tölvunarfræði og það var eitthvað sem ég hafði gaman að. Ég varð forritari þegar ég byrjaði að spila í Vestmannaeyjum og hef verið í því starfi síðan. Námið er góður grunnur fyrir allt, hvort sem það er þetta eða verkfræði."

„Svo gleymist að maður er búinn með þrjá daga í mastersnámi, ég náði þremur dögum. Það má ekki gleyma því, það er meira en margir aðrir," segir Sindri léttur.

„Ég hef verið að notast mikið við kennslu af Google og Youtube upp á síðkastið. Ef maður nennir að fikta eins og maður getur þá kemst maður langt. Ég var að vinna sem forritari í allt öðru kerfi á undan. Það er ágætt vita sirka hvert maður á að leita. Svo skiptir rosalega miklu máli að hafa góðan sessunaut í vinnunni sem maður getur pikkað í."

Sindri var að hugsa um allt aðra starfsgrein þegar hann var yngri, en hann er ánægður með hvernig hlutirnir hafa þróast.

„Ég held að ég hafi ætlað að verða tannlæknir þegar ég var yngri en ég er ekki tannlæknir í dag. Þetta gerðist bara og ég er mjög sáttur með það. Þetta er mjög skemmtilegt starf. Ég var forrita í bókhaldskerfi áður fyrr og þá var gleðin fyrir þann sem ég var að vinna fyrir fólgin í því að rétt laun væru borguð og að reikningar væru borgaðir. Í dag er ég að sjá eitthvað gerast. Fólk er að koma með hugmyndir að því að betrumbæta fyrirtæki sitt eða auglýsa hvað það er að gera, alls konar veflausnir. Að horfa á það að verða að veruleika er mjög gaman. Þetta er aðeins meiri ávinningur og gefur manni meira, fyrir mig allavega."

Hann segir það púsluspil að vera bæði í fótbolta og í krefjandi vinnu. Hann hefur þó fengið mikinn skilning frá þeim vinnustöðum sem hann hefur verið á.

„Þetta er púsluspil en ég hef alltaf fengið að vera með fótboltann í forgangi. Vinnustaðirnir hafa verið helvíti liðlegir. Þetta krefst þess að maður þarf stundum að mæta fyrr á morgnana í vinnuna. Þetta er púsluspil, klárlega. Þetta hentar mér rosalega vel í dag að vinna í Keflavík, það sparar mér hellings tíma. Að þetta hafi gerst svona er betra. Ég hef frítíma eins og aðrir en maður þarf að skipuleggja sig vel. Oft endar þetta á því á eina deginum sem er ekki æfing að þá vill maður gera allt saman, græja allt sem þarf að græja. Þetta er púsluspil en það er gaman þegar allir eru skilningsríkir."

Fyrstu skrefin í Breiðholtinu
Sindri ólst upp hjá ÍR í Breiðholtinu og tók sín fyrstu skref á fótboltaferlinum þar. Ásgeir Elíasson var þjálfari meistaraflokks ÍR á þeim tíma þegar Sindri var að taka sín fyrstu skref með meistaraflokki en það var mikið áfall fyrir félagið þegar hann féll frá árið 2007.

„Ásgeir var hress og skemmtilegur. Hann var líka með aukaæfingar fyrir okkur yngri strákana á morgnana. Það var mikil gleði"

„Það var gaman að taka fyrstu skrefin í ÍR. Ég var með góða þjálfara. Ég var byrjaður að mæta á æfingar hjá meistaraflokki þegar Ásgeir Elíasson heitinn var með ÍR. Þegar Guðlaugur Baldursson tekur við fæ ég fyrstu leikina. ÍR hefur alltaf verið mitt heimafélag og það var draumur að spila þar þegar ég var yngri," segir Sindri.

„Ásgeir var hress og skemmtilegur. Hann var líka með aukaæfingar fyrir okkur yngri strákana á morgnana. Það var mikil gleði. Maður var oft að keppa við hann í skallatennis. Ég held að ég hafi náð þremur eða fjórum æfingum hjá honum, og svo þessum aukaæfingum. Það tók mikið á fyrir félagið þegar hann féll frá. Liðið komst ekki upp það árið en hópurinn varð mjög samheldinn og gerði frábæra hluti í 2. deildinni árið eftir."

Sindri, sem lék með flestum yngri landsliðunum, fór í Breiðablik eftir tíma sinn með ÍR. Hann lék eitt tímabil með Selfossi á láni áður en hann gekk í raðir Keflavíkur fyrir tímabilið 2014.

„Það er klárlega mikill munur á að vera í Keflavíkurliðinu þá og núna. Þetta er mikið breyttur hópur fyrir utan það að Frans Elvarsson var kominn þá. Haraldur Freyr var leikmaður liðsins og er núna aðstoðarþjálfari. Þetta var allt öðruvísi og aðstaðan hefur líka orðið betri. Það er búið að taka klefann og líkamsræktarsalinn í gegn. Aðstaðan er breytt og það eru ný andlit í hópnum," segir Sindri.

„Ég þekkti í rauninni tvo leikmenn þegar ég kem í fyrra, Magnús Þór og Fransa. Árið 2014 og 2015 vorum við Frans að spila saman á miðjunni og tókum svo upp þráðinn í fyrra. Árið 2014 var eldra lið hérna með mörgum kempum. Það eru breyttir tímar núna, mjög breyttir."

„Ég átti klárlega góðan tíma með Keflavík þá, sérstaklega fyrra árið. Seinna árið var hundleiðinlegt úrslitalega séð þó hópurinn hafi verið mjög skemmtilegur."

Góðir tímar í Vestmannaeyjum
Eftir fyrri kaflann með Keflavík þá gekk Sindri í raðir ÍBV. Þar átti hann mjög góðan tíma og staldraði við í fjögur tímabil.

„Að fá að lyfta bikarnum í Eyjum er sennilega hápunkturinn á ferlinum hingað til"

„Ég valdi að fara í ÍBV út af Bjarna Jóhannssyni, þáverandi þjálfara liðsins. Hann böggaði mig heilmikið þarna. Ég var að klára háskólagráðuna þá. Ég var þá búinn að ákveða að vera ekki áfram í Keflavík, en ÍBV var það eina sem mig langaði að gera. Ég var ekkert svakalega stór biti eftir að hafa fallið með Keflavík árið á undan. Ég kláraði háskólagráðuna akkúrat þegar ég skipti yfir um áramótin 2015."

„Ég var í bænum mikið þegar ég var hjá ÍBV - eins og gengur og gerist með leikmenn sem eru í námi eða í vinnu á höfuðborgarsvæðinu. Ég er að flakka á milli. Ég var yfirleitt að taka sumrin í Vestmannaeyjum, var að mæta um mánaðarmótin mars og apríl. Þetta var ótrúlega góður tími, en eftir fjögur ár var lífið í borginni að kalla á mig. Ég naut mín ótrúlega vel í Vestmannaeyjum. Það gekk vel hjá mér persónulega og hjá liðinu. Við förum í Evrópukeppni og verðum bikarmeistarar. Stelpurnar urðu líka bikarmeistarar. Þetta var rosalega góður tími og það gekk vel. Ég er rosalega þakklátur, það var ótrúlega gaman að vera þarna á sumrin," segir Sindri og bætir við:

„Að fá að lyfta bikarnum í Eyjum er sennilega hápunkturinn á ferlinum hingað til."

Skoraði sigurmarkið í ótrúlegum leik
Um mitt sumar fór Sindri í ÍA og var hann þar til 2021. Þjálfari liðsins á þeim tíma var Jóhannes Karl Guðjónsson, núverandi aðstoðarþjálfari karlalandsliðsins. „Það var frábært að vinna með Jóa Kalla. Hann er ástæðan fyrir því að ég fór upp á Skaga," segir Sindri.

„Hann er mjög góður þjálfari. Ég fékk að vera eldri leikmaður í hóp sem var með blöndu af eldri og yngri leikmönnum. Þetta var mjög skemmtilegur hópur og þjálfarinn er einn besti þjálfari sem ég hef verið með, ef ekki sá besti. Jói Kalli er með ótrúlega yfirsýn. Hann var frábær leikmaður og kom með marga góða punkti sem ég nýti mér enn í dag sem miðjumaður. Það var gott að geta haft hann til að kenna manni."

Sem leikmaður ÍA þá tók Sindri þátt í ótrúlegum leik gegn Keflavík sumarið 2021. ÍA þurfti að vinna leikinn til að halda sér uppi en liðið lenti 2-0 undir í byrjun seinni hálfleiks. Skagamenn náðu að snúa leiknum sér í vil og bjarga sér á magnaðan hátt. Sigurmarkið í leiknum gerði Sindri.

„Þetta var skrautlegur leikur. Við fórum á skrið þarna. Við byrjuðum á því að lenda 2-0 undir. Við skorum sjálfsmark í byrjun seinni hálfleiks en svo tekur við korter af einhverju rugli. Þetta var ótrúlega gaman og það var þvílíkur stuðningur í stúkunni. Maður fann eftir fyrsta markið að það var búið að skrifa þetta í skýin. Ég þurfti allavega ekki að borga fyrir neitt upp á Skaga þetta kvöld. Ég held samt að það hafi enginn pælt í því að ég hafi skorað - og ekki ég sjálfur. Ég var meira að pæla í því að fagna í stuðningsmannahópnum," segir Sindri sem er á leið inn í sitt fjórða tímabil með Keflavík núna.

„Ég er að fara inn í mitt fjórða tímabil núna með Keflavík. Ég er mjög sáttur við að vera hérna í dag. Við spiluðum flottan fótbolta í fyrra. Við byrjuðum á að vera með núll stig eftir fjóra leiki. Við vorum í alls konar veseni á undirbúningstímabilinu þar sem við vorum mikið í meiðslum og vorum að púsla saman liðinu. Við vorum samt með sterkan kjarna frá árinu á undan. Þegar leið á mótið byrjaði þetta að smella. Þetta var mjög gott tímabil og skemmtilegt þar sem við vorum að spila svo jákvæðan fótbolta. Við skoruðum rosalega mikið og ég held að leikirnir hafi nánast alltaf verið góð skemmtun fyrir áhorfendur."

Mjög ólíkt lið frá því í fyrra
Það hafa verið miklar breytingar hjá Keflavík í vetur. Liðið hefur misst marga lykilmenn og mætir nánast með gjörbreytt lið til leiks í ár.

„Ég vona innilega að við komum aftur á óvart og ég hef fulla trú á því."

„Það hefur gengið þokkalega vel að þjappa hópnum saman. Við vorum í æfingaferð í þar síðustu viku og þar kynntist hópurinn betur. Það er enn að bætast í hópinn. Það kom leikmaður í síðustu viku. Svo er verið að skoða annan leikmann núna. Það er enn verið að púsla í hópinn en þessi æfingaferð gerði liðinu gott," segir Sindri sem hefur trú á því að Keflavík geti aftur komið á óvart í ár.

„Við erum með mjög ólíkt lið frá því í fyrra. Ég held að það sé aldrei gott að missa sjö byrjunarliðsmenn. Það voru margar mismunandi ástæður fyrir því að menn voru að fara, hvort menn voru seldir eða fóru í atvinnumennsku eða annað slíkt. Því miður er það staðan, en Keflavík er með gott bakland á bak við félagið og það verður allt reynt til að komast á jafngóðan stað og í fyrra, og helst betri."

„Við getum klárlega komið á óvart. Annars værum við ekki í þessu. Við erum með öðruvísi leikmenn og með öðruvísi áherslur. Ég vona innilega að við komum aftur á óvart og ég hef fulla trú á því."

Á systur í landsliðinu
Að lokum barst talið að Selmu Sól Magnúsdóttur, systur Sindra. Hún er atvinnukona hjá Rosenborg í Noregi og spilar með íslenska landsliðinu.

„Það er ótrúlega gaman að fylgjast með henni vaxa í fótboltanum. Ég reyni að horfa hvern einasta leik þegar hún spilar hér heima og fer svo út. Það er extra gaman að sjá hana komast aftur í landsliðið eftir að hún sleit krossband fyrir tveimur árum. Hún á eftir að ná enn lengra, ég er viss um það," segir Sindri sem sá systur sína spila á Evrópumótinu með Íslandi síðasta sumar.

„Ég náði að laumast í sólarhring í fyrra og sá hana koma inn á í leik á Evrópumótinu. Ég var mjög stoltur," sagði þessi áhugaverði miðjumaður að lokum.

Sjá einnig:
Spá Fótbolta.net - 10. sæti: Keflavík
Hin hliðin - Rúnar Gissurarson (Keflavík)
Athugasemdir
banner
banner
banner