Trafford áfram á óskalista Newcastle - Man City vill bjóða leikmenn í skiptum fyrir Tonali - Wharton til Real Madrid?
   sun 29. mars 2026 16:00
Brynjar Ingi Erluson
Andrea og Vigdís í bikarúrslit - Mark Karólínu dugði ekki til
Kvenaboltinn
Karólína Lea skoraði í bikartapi
Karólína Lea skoraði í bikartapi
Mynd: Inter
Andrea Rut er komin í bikarúrslit ásamt Vigdísi Lilju
Andrea Rut er komin í bikarúrslit ásamt Vigdísi Lilju
Mynd: Anderlecht
Andrea Rut Bjarnadóttir og Vigdís Lilja Kristjánsdóttir munu spila til úrslita um belgíska bikarinn í ár en liðið vann frábæran 4-2 sigur á Club Brugge í undanúrslitum í dag.

Báðar voru í byrjunarliði Anderlecht sem á möguleika á að vinna bikarinn í tólfta sinn í sögunni.

Andstæðingurinn verður Waregem sem vann Genk, 3-1, í hinum undanúrslitaleiknum í gær.

Anderlecht er á leið í erfiða úrslitakeppni en liðið er í öðru sæti deildarinnar með 23 stig, sex stigum frá Leuven.

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir kom inn af bekknum og skoraði eina mark Inter í 2-1 tapi gegn Roma í undanúrslitum ítalska bikarsins. Cecilía Rán Rúnarsdóttir stóð í markinu á meðan Telma Ívarsdóttir var á bekknum.

Samanlagt fór Roma áfram, 3-2, eftir tveggja leikja rimmu.

María Catharina Ólafsdóttir Gros byrjaði hjá Djurgården sem vann Växjö, 2-1, í fyrstu umferð sænsku úrvalsdeildarinnar í dag og þá voru þær Fanney Inga Birkisdóttir og Thelma Karen Pálmadóttir í byrjunarliði Häcken sem unnu 3-2 sigur á Brommapojkarna.

Thelma Karen, sem kom frá FH fyrir þetta tímabil, lagði upp annað mark liðsins og hefur hún því komið að fjórum mörkum í þeim átta leikjum sem hún hefur spilað með sænska liðinu í öllum keppnum.

Guðrún Arnardóttir var í vörn Hammarby sem vann 3-1 sigur á hennar gömlu félögum í Rosengård. Landsliðskonan átti ágætis leik en varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið net þegar tæpur hálftími var til leiksloka.

Það kom þó ekki að sök og byrjar Hammarby á góðum sigri í fyrstu umferðinni.
Slapp
Athugasemdir
banner