Bayern hefur gert tilboð í Díaz - Liverpool vill Ekitike
   fim 29. apríl 2021 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Buendia og Farke bestir í Championship
Emiliano Buendía, 24 ára kantmaður Norwich, hefur verið valinn besti leikmaður tímabilsins í Championship deildinni.

Buendía og félagar í Norwich rúlluðu upp deildinni og eru með 93 stig eftir 44 leiki, þegar aðeins tvær umferðir eru eftir. Norwich er búið að tryggja sæti sitt í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð, rétt eins og Watford sem er í öðru sæti. Norwich þarf aðeins tvö stig til að tryggja sér titilinn.

Buendía er kominn með 14 mörk og 17 stoðsendingar í 37 leikjum á deildartímabilinu. Þar af er hann með fjögur mörk og fjórar stoðsendingar í síðustu sex leikjum.

Daniel Farke, knattspyrnustjóri Norwich, var valinn besti stjóri deildarinnar. Þrír liðsfélagar Buendía hjá Norwich voru valdir í lið ársins, þar á meðal finnski sóknarmaðurinn Teemu Pukki sem skoraði 25 mörk í 40 leikjum. Hægri bakvörðurinn eftirsótti Max Aarons var einnig í liði tímabilsins ásamt miðverðinum Grant Hanley.

Lið tímabilsins.
Asmir Begovic (Bournemouth)

Max Aarons (Norwich)
Sean Morrison (Cardiff)
Grant Hanley (Norwich)
Adam Masina (Watford)

Emiliano Buendía (Norwich)
Alex Mowatt (Barnsley)
Michael Olise (Reading)
Arnaut Danjuma (Bournemouth)

Teemu Pukki (Norwich)
Ivan Toney (Brentford)


Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Birmingham 0 0 0 0 0 0 0 0
1 Leeds 46 29 13 4 95 30 +65 100
2 Burnley 46 28 16 2 69 16 +53 100
2 Blackburn 0 0 0 0 0 0 0 0
3 Bristol City 0 0 0 0 0 0 0 0
4 Charlton Athletic 0 0 0 0 0 0 0 0
4 Sunderland 46 21 13 12 58 44 +14 76
5 Coventry 0 0 0 0 0 0 0 0
6 Derby County 0 0 0 0 0 0 0 0
7 Hull City 0 0 0 0 0 0 0 0
8 Ipswich Town 0 0 0 0 0 0 0 0
9 Leicester 0 0 0 0 0 0 0 0
10 Middlesbrough 0 0 0 0 0 0 0 0
11 Millwall 0 0 0 0 0 0 0 0
12 Norwich 0 0 0 0 0 0 0 0
13 Oxford United 0 0 0 0 0 0 0 0
14 Portsmouth 0 0 0 0 0 0 0 0
15 Preston NE 0 0 0 0 0 0 0 0
16 QPR 0 0 0 0 0 0 0 0
17 Sheffield Utd 0 0 0 0 0 0 0 0
18 Sheff Wed 0 0 0 0 0 0 0 0
19 Southampton 0 0 0 0 0 0 0 0
20 Stoke City 0 0 0 0 0 0 0 0
21 Swansea 0 0 0 0 0 0 0 0
22 Watford 0 0 0 0 0 0 0 0
22 Luton 46 13 10 23 45 69 -24 49
23 West Brom 0 0 0 0 0 0 0 0
23 Plymouth 46 11 13 22 51 88 -37 46
24 Cardiff City 46 9 17 20 48 73 -25 44
24 Wrexham 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner