Aston Villa fylgist með Mbaye - Coventry og Leeds berjast um Openda - Gordon á leið til Bayern - Vilja Trafford sem arftaka Martínez
Bryndís Rut hreinskilin eftir stórt tap: „Markmiðið er að halda okkur í deildinni“
Keflavík rúllaði yfir Tindastól – „Geggjað að taka svona sigur“
Hetjan Hallgrímur æfði ekkert í vikunni: Ákvað að svara þegar ég skoraði
Haddi: Róar taugarnar hjá mér
Siggi Höskulds lýsir vonbrigðunum: Nei það er ekki hægt
Gunnar Heiðar ósáttur eftir sigur: Er ekkert eðlilega óánægður með þetta
Nenad: Ég ætla ekki að tjá mig
Jóhann Birnir ósáttur með rauða spjaldið - „Fannst hann bara sækja brotið"
Venni: Ég var aldrei í rónni
Elfar Árni: Spennandi að sjá hvort einhver nýr verði á bekknum í næsta leik
Modoumatarr frá Stokkhólmi: Rólegt líf á Húsavík.
Maggi svekktur: Þeir eru með hörkuhóp
Davíð Smári: Svo sem hægt að kenna dómaranum um
Damir: Gekk betur þegar við föttuðum það
„Smá högg í vetur þegar ég var ein af þeim elstu 22 ára"
„Sigurmark í lokin gerir þetta ennþá sætara“
Mist lagði upp sigurmarkið - „Þetta var nákvæm hreinsun“
Hannah: Rúsínan í pylsuendanum
Arna Sif: Gerist eiginlega ekki verra
Hólmar: Hefur mikla þýðingu fyrir alla í kringum Val
   lau 29. apríl 2023 19:48
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Haddi ósáttur við Víkinga: Fullorðnir karlmenn í vestum sparkandi boltanum í burtu
Haddi hugsar fjórða dómara þegjandi þörfina í leiknum í dag.
Haddi hugsar fjórða dómara þegjandi þörfina í leiknum í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sævar gengur ósáttur af velli eftir rauða spjaldið.
Sævar gengur ósáttur af velli eftir rauða spjaldið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mjög súrt. Mér fannst við eiga að fá eitthvað úr þessum leik. Bæði lið flott, jafn leikur og ætli jafntefli hefði ekki verið sanngjörn niðurstaða. Bæði lið gátu stolið þessu og þeir gerðu það. Við klúðruðum dauðafæri og þetta var eini sénsinn sem þeir fengu. Þannig er bara fótbolti, ef þú ert ekki með einbeitingu í 90mín plús þá refsa góð lið," sagði Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, eftir leikinn gegn Víkingi í dag.

Sigurmark leiksins kom undir lokin og var það Færeyingurinn Gunnar Vatnhamar sem gerði eina markið.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 1 -  0 KA

„Við spilum frábæran leik á móti flottu Víkingsliði. Við erum bara á góðum stað hvað það varðar. Hins vegar erum við svekktir með stigasöfnunina, við förum heim svekktir í kvöld og svo erum við bara klárir. Ég held að allir sjái það og meira segja sagði þjálfari Víkinga að þeir hefðu ekki lent í svona veseni á heimavelli eins og við vorum að valda þeim í fyrri hálfleik. Við erum sárir og svekktir en samt ánægðir með frammistöðuna."

Gunnar kom með djúpt hlaup og keyrði inn á teiginn þar sem laust pláss var. Boltinn kom þangað og úr varð mark.

„Gunnar er bara miðjumaður sem kemur inn á teiginn. Við eigum bara að klára hann. Þeir fá eitt færi þar sem þeir eru ótruflaðir og hann klárar vel."

Næstu mínútur eru KA menn mjög ósáttir við Vilhjálm Alvar dómara. „Ég var virkilega ósáttur með hann, mér fannst þeir vera að kasta sér niður um allan völl og fannst hann falla í þá gildru. Svo er ég ósáttur við að það var systematískt verið að gera hlutina erfiða fyrir utan völlinn; boltastrákarnir reknir í burtu, fullorðnir karlmenn í vestum sparkandi boltanum í burtu þegar við eigum innkast og erum að fara taka þau."

„Þetta er rosalega slappt, ég mæli með að þið kíkið á þetta."
Varðandi boltasækjarana þá fékk fréttaritari ábendingu um að í því tiltekna atviki hafi boltasækjari verið að ná í bolta sem sparkað var yfir auglýsingaskiltin. KA menn sáu það ekki þannig; mögulega voru atvikin fleiri.

Viðtalið í heild má sjá efst í spilaranum
Slapp
banner
banner
banner