Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   fös 29. maí 2026 15:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Arnar Páll spáir í 7. umferð Bestu kvenna
Arnar Páll var hluti af þjálfarateymi Stjörnunnar á síðasta tímabili.
Arnar Páll var hluti af þjálfarateymi Stjörnunnar á síðasta tímabili.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Spáir Þrótti sigri í leik kvöldsins.
Spáir Þrótti sigri í leik kvöldsins.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sjöunda umferðin í Bestu deild kvenna er leikin í dag og á morgun.

Fótboltaþjálfarinn Arnar Páll Garðarsson tekur að sér það verkefni að spá í leikina sem eru framundan.

Valur 0 - 1 Þróttur R. (19:15 í kvöld)
Býst við lokuðum leik þar sem Þróttur mun stjórna ferðinni án þess að gera of mikið við boltann. Þær ná að troða einu inn eftir fyrirgjöf frá Mist og Kayla stangar hann inn.

Grindavík/Njarðvík 1 - 3 Breiðablik (14:00 á morgun)
Mest spennandi leikur umferðarinnar. Hér fáum við opnari leik og jafnvel smá vott af Samba bolta. Ég bið um opinn leik og 1-3 sigur Breiðabliks. Ása fagnar landsliðssæti með tvennu.

FH 4 - 1 Fram (14:00 á morgun)
Ætla að spá jafnari leik út á velli en maður ætti að búast við. Fram mun skapa færi en býst ekki við að þær nái að nýta þau öll til að fá eitthvað útur þessu. FH fylgir eftir frábærum sigri og tekur þetta 4-1, sá sem dekkar Ingibjörgu í þessum vill gleyma þessum leik sem fyrst.

Þór/KA 1 - 2 Víkingur R. (14:00 á morgun)
Tvö lið í alvöru ströggli og horfa í þennan leik til að rétta við kútnum. Ef og hefði leikurinn. Spilar Erin og spilar Freyja? Ég ætla að skella þessu á að Freyja sé tilbúin en ekki Erin og Víkingur vinnur 2-1 sigur. Freyja x Jasmín combóið.

Stjarnan 3 - 0 ÍBV (14:00 á morgun)
Tvö lið sem vilja ekki stjórna leikjum og því verður athyglisvert að sjá hvernig leikurinn spilast. Engin Embla, Allison og Olga gera það hinsvegar að verkum að ÍBV á ekki séns i þennan leik. Það kviknar á Úlfu og Snædís heldur áfram að spila vel. 3-0 sigur Stjörnunnar, clean sheet og mark úr föstu leikatriði og Óskar Smári talar um að þær gæti unnið Barcelona eftir leik.

Fyrri spámenn:
Aldís Kara (4 réttir)
Ásta Eir (4 réttir)
Mist Rúnars (3 réttir)
Katrín Ásbjörns (3 réttir)
Arna Eiríks (2 réttir)
Jóhann Fjalar (1 réttur)
Uppbótartíminn - Algjör sigur fyrir þessa deild
Slapp
banner