Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   fös 29. maí 2026 20:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guardiola: Stærsta viðurkenning sem hægt er að fá
Pep Guardiola.
Pep Guardiola.
Mynd: EPA
Pep Guardiola hefur lokið tíma sínum sem stjóri Manchester City eftir tíu ár við stjórnvölinn þar sem hann vann alls 20 titla með félaginu.

Eftir magnaðan tíma hans hjá félaginu hefur City ákveðið að nefna eina stúku á Etihad-vellinum í höfuðið á honum. Guardiola er mjög þakklátur fyrir það.

„Þetta er stærsta viðurkenning sem hægt er að fá,“ sagði Guardiola í viðtali við Noel Gallagher sem birt hefur verið á heimasíðu Manchester City.

Guardiola grínaðist með eigin arfleifð hjá félaginu.

„Í framtíðinni mun fólk spyrja: 'Hver er þessi gaur?' og 'Hvað er þetta nafn?' og þá verður sagt: 'Ah, þetta var sköllóttur maður sem vann nokkra titla'," sagði hann brosandi.

Guardiola stýrði Manchester City í 593 leikjum, vann 423 þeirra, gerði 77 jafntefli og tapaði 93 leikjum.
Slapp