Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 29. júní 2020 10:30
Magnús Már Einarsson
Svakaleg stoðsending Benzema - Betri en Guti?
Karim Benzema.
Karim Benzema.
Mynd: Getty Images
Karim Benzema, framherji Real Madrid, átti magnaða stoðsendingu í 1-0 sigri liðsins á Espanyol í spænsku úrvalsdeildinni í gær.

Benzema sendi boltanum með hælnum í gegnum klofið á varnarmanni Espanyol og þar kom Casemiro á ferðinni og skoraði.

Benzema skoraði sjálfur gegn Deportivo La Coruna árið 2010 eftir magnaða hælsendingu frá Guti.

Zinedine Zidane, þjálfari Real Madrid, vill meina að hælsendingin hjá Benzema hafi verið betri en hjá Guti á sínum tíma.

„Mér finnst þetta vera besta stoðsendingin," sagði Zidane um málið eftir leik.

Smelltu hér til að sjá stoðsendingu Benzema

Hér að neðan er stoðsendingin fræga hjá Guti.


Athugasemdir
banner
banner
banner