Enska félagið Crystal Palace er að ganga frá kaupum á Cheick Doucoure frá franska félaginu Lens.
Doucoure er 22 ára miðjumaður og greiðir Palace um átján milljónir punda fyrir leikmanninn.
Doucoure er 22 ára miðjumaður og greiðir Palace um átján milljónir punda fyrir leikmanninn.
Doucoure, sem er frá Malí, er á leið í læknisskoðun hjá Palace á morgun. Hann var efstur á óskalista Patrick Vieira þegar sumarglugginn hófst. Leikstíll Doucoure er sagður svipa til leikstíls Vieira.
Doucoure kom við sögu í 34 leikjum með Lens á síðasta tímabili, skoraði einu sinni og lagði upp fjögur mörk.
Athugasemdir