Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 29. júní 2022 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Everton vill Bergwijn en hafnaði tilboði frá Tottenham
Mynd: Getty Images

Tottenham hefur áhuga á Richarlison, framherja Everton, á meðan Everton hefur áhuga á Steven Bergwijn, kantmanni Tottenham.


Félögin eiga þó erfitt með að komast að samkomulagi um kaupverð þar sem Tottenham vill fá 25 milljónir punda fyrir Bergwijn á meðan Everton vill rúmlega 50 milljónir punda fyrir Richarlison.

Tottenham ákvað því að bjóða 20 milljónir punda auk Bergwijn til að kaupa Richarlison en stjórnendur Everton voru snöggir að neita því tilboði samkvæmt fréttamönnum Telegraph.

Ef skoðað er De Telegraaf í Hollandi þá segir þar að Bergwijn sjálfur vilji frekar fara til Ajax heldur en Everton. Hollandsmeistararnir hafa sýnt honum mikinn áhuga en vilja ekki borga 25 milljónir.

Bergwijn vill frekar vera nær fjölskyldunni og spila í Meistaradeildinni þó Everton gæti boðið honum talsvert hærri laun.


Athugasemdir
banner
banner
banner