Fotbolti.net
29.07.22 - 18:50
Ívan Guðjón Baldursson

Ronaldo spilar við Rayo Vallecano á sunnudag

Ronaldo spilar við Rayo Vallecano á sunnudag
Canon

Mynd: EPA

Það vakti athygli fyrr í dag þegar leikmannahópur Manchester United fyrir æfingaleik gegn Atletico Madrid var kynntur í dag.

Þar var engan Cristiano Ronaldo að finna og virtist Portúgalinn ætla að missa af öllu undirbúningstímabili Rauðu djöflanna en sú er ekki raunin.

Ronaldo mun ekki spila gegn Atletico á morgun en hann verður með í sunnudagsleiknum gegn Rayo Vallecano. Hann greindi frá því sjálfur með ummælum á Instagram.

Erik ten Hag skiptir leikmannahópi Man Utd upp í tvennt og þannig getur liðið spilað tvo leiki á tveimur dögum.

Þetta verða síðustu æfingaleikir Man Utd fyrir komandi tímabil þar sem liðið heimsækir Brighton í fyrstu umferð.

Ronaldo er talinn vilja yfirgefa Manchester en félagið vill ekki selja hann.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.