Fotbolti.net
29.07.23 - 18:52
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Mikilvægar mínútur fyrir Ollu Siggu - „Nær vonandi nokkrum leikjum"

Auglýsing
Ólöf Sigríður

Ólöf Sigríður

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz

„Ég er ánægður að við komum hingað og kláruðum verkefnið. Við sáum það á vellinum að við gátum spilað okkar leik. Við þurftum að velja réttu augnablikin og nýta tækifærin þegar þau kæmu," sagði Nik Chamberlain þjálfari Þróttar eftir sigur á Þór/KA í Bestu deild kvenna í dag.

„Það var gott að skora snemma, byrja á góðum nótum. Þór/KA náði aðeins yfirhöndinni en við breyttum kerfinu aðeins. Það drap svo leikinn að ná inn marki undir lok fyrri hálfleiks. Það hefði verið allt annar seinni hálfleikur ef staðan hefði verið 1-0."

Þróttur er þremur stigum á eftir Breiðablik og fimm stigum á eftir Val eftir úrslit kvöldsins.

„Við viljum berjast við toppinn. Það verður erfitt því bæði lið hafa styrkt sig vel. Ef við höldum áfram að gera það sem við erum að gera og náum í stig erum við sátt," sagði Nik.

Erfitt að berjast við Blika og Valsara á markaðnum.

„Við erum að reyna en það er erfitt þegar þú ert að berjast við þessi lið. Við erum að reyna ná í svipaða leikmenn en við höfum ekki sama fjármagn sem gerir gæfumuninn. Ég ætla ekki að ná í einhvern bara til að ná í einhvern, ef það er erlendur leikmaður. Ég vil frekar nota leikmennina sem eru hér nú þegar og hafa unnið hörðum höndum í vetur og yngri leikmenn sem eru að stíga upp."

Ólöf Sigríður kom inn á sem varamaður en hún hafði ekki leikið með liðinu í einn og hálfan mánuð. Þá var Katla Tryggvadóttir hvíld í kvöld.

„Hún hefur verið að koma hægt og rólega til baka. Það var gott fyrir hana að fá 10 mínútur, hún nær vonandi nokkrum leikjum áður en hún fer í Harvard en það mikilvægasta er að hún er mætt út á völl," sagði Nik.

„Við þurfum að fara varlega með Kötlu. Hún kom mjög þreytt til baka frá EM U19. Það er skiljanlegt, GPS-ið sýndi það svo við þurfum að fara varlega með hana."

Katla Tryggvadóttir

Katla Tryggvadóttir

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.