Fotbolti.net
29.08.23 - 16:11
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Skrifar frá: Viðtal

Jökull: Munum aldrei vita hvort þetta voru mistök eða ekki

Átta mig alveg á því að fólk velti því fyrir sér af hverju leikmaður og af hverju ekki hinn og þessi

Átta mig alveg á því að fólk velti því fyrir sér af hverju leikmaður og af hverju ekki hinn og þessi

Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Það vakti athygli á laugardag þegar Jökull Elísabetarson var ekki á hliðarlínunni þegar Stjarnan mætti KA í Bestu deildinni. Jökull var nýbúinn að eignast sitt þriðja barn og tók Björn Berg Bryde við hlutverki þjálfarans á hliðarlínunni. Það hefur talsvert verið gagnrýnt að Björn, leikmaður liðsins, var í hlutverki þjálfarans en ekki einhver þjálfari sem starfar hjá Stjörnunni.

Fótbolti.net ræddi við Jökul í dag og fékk hans hlið málsins.

Sjá einnig:
Af hverju leitaði Stjarnan ekki í reynslumikinn þjálfara til að leysa Jökul af?
Óli um Stjörnuna: Miklu betra að ráða engan heldur en að ráða bara einhvern
Heilsast öllum vel, allt í toppmálum? „Já, það gengur vel, erum í mjög góðum málum, allir heilbrigðir og við í toppmálum," sagði Jökull.

En hvernig kom það til að Björn Berg var á hliðarlínunni á laugardag?

„Ég vissi það í sjálfu sér ekki 100% fyrr en mjög seint, við héldum flugmiðanum allan tímann. Ég hafði hugmynd um að þetta gæti orðið staðan í vikunni þar sem við eigum smá sögu um langar og erfiðar fæðingar. Af því að leikurinn var færður (átti upphaflega að fara fram á sunnudag) og alls konar dæmi þá vissi maður í vikunni að þetta gæti orðið staðan. Við undirbjuggum það og ég átta mig alveg á því að fólk velti því fyrir sér af hverju leikmaður og af hverju ekki hinn og þessi. Þetta var ekki bara Bjössi, við vorum með Þór (styrktarþjálfara) og Rajko (markvarðaþjálfara) sem eru alltaf þarna," sagði Jökull.

„Auðvitað búum við vel hvað þjálfara varðar í Stjörnunni. Við erum með Veigar (Pál Gunnarsson) sem hefur gert ótrúlega flotta hluti með 2. flokkinn, Toddi (Þorvaldur Örlygsson) sem hefur reynst mér ótrúlega vel, miklu betur en hann mun örugglega nokkurn tímann gera sér grein fyrir. Bjössi er öflugur karakter í hópnum að öllu leyti, sterkur, með virðingu í hópnum og hefur eiginleika til að taka þetta að sér. Hann var tilbúinn til þess og gerði það að mínu mati ótrúlega vel."

„Þessi leikur var ekki jafn góður og við hefðum viljað, þó svo að við teljum allt bakka upp þá tilfinningu að menn áttu skilið að taka sigurinn. Það voru samt ákveðnir þættir sem við vorum ósáttir með hjá okkur sjálfum, við ætlum að stíga upp frá þessum leik og gera betur - og töluvert betur. Það eina sem ég veit er að ástæðan er ekki vegna þess að Bjössi var þarna. Það er alltaf aðeins öðruvísi dýnamík þegar þjálfarinn er ekki á svæðinu, en ég taldi hópinn þann þéttan að geta tæklað þetta svona. Við munum aldrei fá að vita hvort þetta voru mistök eða ekki. Ég var mjög ánægður með Bjössa, var öflugur í þessu og svo fór þetta bara eins og þetta fór. Verri hlutir hafa komið fyrir."


Afgerandi pælingar
Vitandi að möguleikinn að þú yrðir ekki á hliðarlínunni væri fyrir hendi, var skoðað að hafa Todda eða Veigar á æfingum í vikunni fyrir leikinn til að hafa þá til taks?

„Ég pældi í því og pældi í öllu mögulegu. Við erum búnir að vinna í mjög afgerandi þáttum hjá okkur í langan tíma. Maður hugsaði þetta þannig að helst halda þessu innan þess hóps sem var búinn að vera vinna að því. Það var ekki af því maður sá einhverja vankanta á þeim, þvert á móti, það var meira þessar afgerandi pælingar - ég ákvað að halda þessu algjörlega innan þess hóps sem hefur verið að þéttast og er með trú á því sem við erum að gera. Það var stóra ástæðan."

Snýst um að finna rétta manninn
Hvernig standa málin varðandi aðstoðarþjálfara? Ertu að pæla í þessu núna? Viltu bíða þar til eftir tímabil?

„Ég hef allan tímann verið á því að þetta snýst um að finna réttan mann, snýst miklu frekar um það en tímasetningu. Það er bara í skoðun alla daga í raun og veru. Það er erfitt að sjá hvenær við sjáum einhverja niðurstöðu í því. Það liggur ekki á í mínum huga að klára það fyrir lok tímabilsins, bara alls ekki. Liðið er á góðum stað og ef það vantar auka hendur þá erum við með fullt af öflugum mönnum, ekki bara Todda og Veigar, heldur fullt af mönnum í yngri flokka starfinu sem hafa gert ótrúlega góða hluti í yngri flokka starfinu sem hafa skilað sér mjög afgerandi upp í meistaraflokkinn. Þannig það er ekkert vandamál. Það er bara í skoðun."

Jökull verður á hliðarlínunni þegar Stjarnan kemur í heimsókn á sunnudag.

„Já. Það var alltaf vitað að þetta gæti orðið einn leikur en maður vonaði að þetta myndi frekar lenda rétt eftir leik en á leikdag. Það vildi til að fæðingin átti sér stað á erfiðasta mögulega tíma, ekkert löngu fyrir hádegi á leikdegi þegar liðið er að ferðast norður. Ég verð á hliðarlínunni það sem eftir er af tímabilinu."

Endurheimtir leikmenn
Verða allir sem spiluðu á móti KA með á móti Keflavík?

„Já, og fleiri. Dolli (Adolf Daði Birgisson) kemur inn eftir leikbann og ég reikna með að Heiðar (Ægisson) verði klár. Hann var líka að eignast barn, daginn fyrir leik. Hann lenti þar í að það að barnið kom löngu fyrir tímann. Það var mikilvægt að hann fengi tíma með konu og barni, næði að passa vel upp á þau. Bjössi verður klár, stígur niður aftur, þannig að við verðum í toppmálum."

Einhverjir að kroppa í hann
Verður Eggert Aron Guðmundsson í hópnum? Glugginn í Skandinavíu er að loka í vikunni og hann er mjög eftirsóttur.

„Það er erfitt að segja, það er stutt eftir af glugganum, það eru einhverjir að kroppa í hann. Við munum örugglega sjá það mjög fljótlega hvernig það hreyfist," sagði Jökull.
Hann var tilbúinn til þess og gerði það að mínu mati ótrúlega vel

Hann var tilbúinn til þess og gerði það að mínu mati ótrúlega vel

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Hefur gert ótrúlega flotta hluti með 2. flokkinn

Hefur gert ótrúlega flotta hluti með 2. flokkinn

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hefur reynst mér ótrúlega vel, miklu betur en hann mun örugglega nokkurn tímann gera sér grein fyrir.

Hefur reynst mér ótrúlega vel, miklu betur en hann mun örugglega nokkurn tímann gera sér grein fyrir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það er stutt eftir af glugganum

Það er stutt eftir af glugganum

Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Ég verð á hliðarlínunni það sem eftir er af tímabilinu

Ég verð á hliðarlínunni það sem eftir er af tímabilinu

Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

<b>Innkastið</b> - Listrænn gjörningur

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.