Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 29. nóvember 2022 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Jakob Leó þjálfar Elliða áfram - Jón Steindór aðstoðar
Jón Steindór og Rakel Logadóttir
Jón Steindór og Rakel Logadóttir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jakob Leó Bjarnason hefur framlengt samning sinn við Elliða og mun þjálfa liðið áfram næsta sumar.


Hann tók við liðinu fyrir síðasta tímabil og stýrði því í 8. sæti 3. deildarinnar.

Hann hefur fengið Jón Steindór Þorsteinsson til að aðstoða sig en hann stýrði kvennaliði Fylkis í sumar en hætti mjög óvænt með liðið ásamt Rakel Logadóttur.

„Stjórn Elliða er spennt fyrir framhaldinu og vonumst við eftir farsælu samstarfi," segir í tilkynningu félagsins.


Athugasemdir
banner
banner
banner