þri 29. nóvember 2022 15:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Jeppakall spáir í Íran - Bandaríkin
Mynd: Aðsend
Klukkan 19:00 fer lokaumferð B-riðils fram. Wales og England mætast annars vegar og Íran og Bandaríkin hins vegar.

Íran er með þrjú stig og Bandaríkin eru með tvö stig eftir tvær umferðir. Þessi leikur verður sýndur á RÚV2.

Twitter grínarinn Jeppakall69, Skagamaðurinn Bjarki Viðarsson, spáir í leikinn.

Íran 1 - 1 Bandaríkin
Carlos Queiroz sem er elskaður vs Gregg The Nerd Berhalter sem er hataður.

The Nerd er of þrjóskur, spilar leiðinlegan bolta, með ofmetinn Pulisic sem skorar reyndar og svo Aaronson sem spila lítið sem ekkert. Giovanni Reyna fær ekki að labba á grasinu og það kemur í bakið á honum núna. Gregg verður rekinn eftir þennan leik.

ÍRAN FER ÁFRAM
BOTD : Taremi to score @5


Athugasemdir
banner
banner
banner