Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 30. janúar 2020 19:20
Elvar Geir Magnússon
Roma fær Carles Perez frá Barcelona (Staðfest)
Carles Perez.
Carles Perez.
Mynd: Getty Images
Roma hefur fengið til sín Carles Perez, vængmann frá Barcelona. Í samningnum er ákvæði um að Börsungar fái forkaupsrétt á honum til baka í framtíðinni.

Þessi 21 árs leikmaður á að fylla skarð Nicolo Zaniolo sem er í langtíma meiðslum.

Perez segis spenntur fyrir vistaskiptunum og að hann geti ekki veðið eftir að mæta á sína fyrstu æfingu.

Perez hefur leikið ellefu leiki og skorað tvö mörk fyrir Barcelona á þessu tímabili.

Hann er annar spænski U21-landsliðsmaðurinn sem gengur í raðir Roma í dag. Gonzalo Villar kom frá Elche.

Roma er í fjórða sæti ítölsku A-deildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner