Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 30. janúar 2023 12:02
Elvar Geir Magnússon
Daily Mail: Inter vill fá Maguire
Harry Maguire.
Harry Maguire.
Mynd: EPA
Inter hefur sent fyrirspurn varðandi Harry Maguire, miðvörð Manchester United.

Blaðið segir að Maguire, sem er fyrirliði á Old Trafford, vilji bíða til sumars með að ganga frá framtíð sinni.

Inter vill fá nýjan miðvörð þar sem Slóvakinn Milan Skriniar er á leið til PSG í Frakklandi.

Maguire er notaður sem varamaður hjá United en hann var í lykilhlutverki með enska landsliðinu á HM í Katar og skilaði góðri frammistöðu.

Maguire hefur aðeins byrjað einn úrvalsdeildarleik fyrir United. Lisandro Martínez og Raphael Varane eru miðvarðapar númer eitt.
Athugasemdir
banner
banner
banner