30.03.20 - 06:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Steve Bull: Sé enga ástæðu fyrir Jimenez að yfirgefa Wolves

Jimenez er öflugur markaskorari.

Mynd: Getty Images

Jimenez er öflugur markaskorari.

Mynd: Getty Images
Mexíkóinn Raul Jimenez er búinn að eiga mjög gott tímabil í liði Wolves og hefur verið duglegur við markaskorun.
Steve Bull sem raðaði inn mörkunum hjá Wolves á sínum tíma sér ekki fyrir sér að Jimenez muni yfirgefa Úlfanna á næstunni þrátt fyrir að vera orðaður við stórlið eins og Real Madrid.
„Ég sé enga ástæðu fyrir því afhverju hann ætti að vilja fara, Jimenez hefur skorað 22 mörk í 44 leikjum í öllum keppnum á tímabilinu, það er ótrúleg tölfræði," sagði Bull sem var sjálfur duglegur við markaskorun á sínum tíma eins og áður segir.
„Það sem hefur heillað mig mikið við hann er það að þó hann sé ekki upp á sitt besta skorar hann samt mörk. Ég nefni leikinn gegn Tottenham sem dæmi, þar fór mjög lítið fyrir honum fyrst um sinn en svo allt í einu var hann búinn að tryggja Wolves sigurinn með frábæru marki, eitthvað sem mun seint gleymast," sagði Bull.