Emil Pálsson átti frábært tímabil með Íslandsmeisturum FH í fyrra þar sem hann gerði sex mörk í tólf leikjum á síðari hluta tímabilsins, eftir að hafa leikið fyrir Fjölni fyrri hlutann.
Íslandsmótið hefst á morgun og eiga FH-ingar fyrsta leik tímabilsins, á útivelli gegn Þrótti.
Íslandsmótið hefst á morgun og eiga FH-ingar fyrsta leik tímabilsins, á útivelli gegn Þrótti.
Emil kom við sögu í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu 97,7 og sagðist vera mjög spenntur fyrir sumrinu.
„Við erum mjög vel stemmdir fyrir leikinn á morgun. Það er hefð hjá okkur að við kíkjum alltaf í kirkjugarðinn í Hafnarfirði og heilsum upp á fyrrum framkvæmdastjóra FH, Þóri Jóns. Það er alltaf byrjunin á sumrinu hjá okkur og þá er fiðringurinn kominn í mann," sagði Emil áður en bent var á að FH er spáð Íslandsmeistaratitlinum annað árið í röð af öllum fjölmiðlum landsins og Þrótti R. spáð botnsætinu af öllum fjölmiðlum.
„Þetta er eitthvað sem við erum búnir að vera að venjast síðustu tíu, fimmtán ár. Okkur er alltaf spáð í toppnum og það er mikil utanaðkomandi pressa en eina pressan sem við finnum fyrir er sú sem við setjum á okkur.
„Við mætum í þennan leik eins og alla aðra. Þetta lið hjá Þrótti er mikið spurningarmerki, þeir eru með mikið af útlendingum sem við höfum lítið séð af. Við komum ekki með neitt vanmat í þennan leik."
Útvarpsviðtalið er hægt að hlusta á hér fyrir ofan.
sunnudagur 1. maí
16:00 Þróttur R.-FH (Þróttarvöllur)
17:00 ÍBV-ÍA (Hásteinsvöllur)
19:15 Breiðablik-Víkingur Ó. (Kópavogsvöllur)
20:00 Valur-Fjölnir (Valsvöllur)
mánudagur 2. maí
19:15 Stjarnan-Fylkir (Samsung völlurinn)
19:15 KR-Víkingur R. (Alvogenvöllurinn)
Athugasemdir