Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 30. apríl 2021 07:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Marija Rodojicic ekki með Fylki í sumar - Lenti í bílslysi í fyrra
Í leik sumarið 2019
Í leik sumarið 2019
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Marija Radojicic lék ekkert með Fylki í fyrrasumar eftir að hafa lent í bílslysi skömmu fyrir mót.

Kjartan Stefánsson, þjálfari Fylkis, staðfesti í gær að Marija yrði ekki með Fylki í sumar.

„Það talaði nánast enginn um að það hafi vantað hana en þá kom bara maður í manns stað," sagði Kjartan.

„Hún er ekki að koma aftur inn fyrir þetta tímabil. Hún er enn að ná sér og hefur ekkert getað æft. Ég held að hún komi ekki til baka á þessu ári."

Marija verður 29 ára gömul. Hún er serbneskur framherji sem gekk í raðir Fylkis fyrir tímabilið 2018 og skoraði alls 16 mörk tímabilin 2018 og 2019.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner