Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 30. apríl 2021 16:16
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðar Ari velur draumaliðið sitt - „Ég gæti endað á toppi deildarinnar"
Lið Viðars. Smelltu á myndina til að sjá hana stærri.
Lið Viðars. Smelltu á myndina til að sjá hana stærri.
Mynd: Draumaliðsdeild Eyjabita
Viðar við hlið Emils sem valdi sitt draumalið í gær.
Viðar við hlið Emils sem valdi sitt draumalið í gær.
Mynd: Sandefjord
Fjölnismaðurinn Viðar Ari Jónsson, bakvörður Sandefjord, hefur valið lið sitt í Draumaliðsdeild Eyjabita fyrir sumarið.

Opnunarleikur mótsins er í kvöld og þarf að vera búinn að velja liðið fyrir klukkan 19:00!!

Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!

Viðar stillir upp í 3-4-3 fyrir umferðina og hafði þetta að segja um valið:

„Nafn á liði: Real Jónsson... lenti á ákveðnum vegg við val á nafni, möguleikarnir svo margir að stressið tók yfir og ég endaði í þessu. Liðið sjálft: mikil gæði fyrst og fremst."

„Topp 3 eru að fara skila inn mikið af stigum það er á hreinu, mörk mörk mörk. Miðjan er mikil gæði líka, Binni bolti og Óskar Örn leggja upp og skora. Blikarnir Oliver og Gísli gera það líka, reikna með markaregni í sumar frá Oliver."

„Varnarlínan er skemmtilega samsett, Kiddi Jóns helvíti skemmtilegur og grimmur í bakverðinum, á eftir að taka nokkrar vinstri fótar dúndrur í sumar, Ásgeir og G júl sjá um að læsa búrinu ásamt Færeyingnum Gunna Nílsen í markinu."

„Bandið fer rakleiðis á minn mann G.Júl, hann peppar menn svo vel upp og ég er viss um að hann eigi eftir að vera stórkoslegur í sumar innan sem utan vallar og draga vagninn fyrir mitt lið. Get svo svarið það að ég held ég gæti bara endað á toppi draumaliðsdeildarinnar í ár með þetta gengi,"
segir Viðar.

Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!

Sjá einnig:
Valgeir Valgeirs velur draumaliðið sitt
Oliver Stefáns velur draumaliðið sitt
Stefán Teitur velur draumaliðið sitt
Bjarni Mark velur draumaliðið sitt
Valgeir Lunddal velur draumaliðið sitt
Hörður Snævar velur draumaliðið sitt
Andri Fannar velur draumaliðið sitt
Hrafnkell Freyr velur draumaliðið sitt
Atli Viðar velur draumaliðið sitt
Aron Elís velur draumaliðið sitt
Daníel Leó velur draumaliðið sitt
Viðar Örn velur draumaliðið sitt
Steve Dagskrá velja draumaliðin sín
Emil Páls velur draumaliðið sitt
Athugasemdir
banner