Klopp segir Mason að hugsa um að spila betri fótbolta


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Ryan Mason, bráðabirgðastjóri Tottenham, var reiður eftir 4-3 tap gegn Liverpool í dag. Hann var ósáttur með dómgæsluna í leiknum þar sem hann taldi meðal annars að Diogo Jota hafi átt að fá rautt spjald þegar hann fór með takkana í hausinn á Oliver Skipp.
Jota slapp með gult spjald og skoraði svo sigurmark Liverpool á 94. mínútu. Mason kvartaði sáran undan þessu í viðtölum að leikslokum og gaf Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, honum harkalegt svar.
„Ryan ætti að hugsa um aðra hluti, eins og að spila betri fótbolta. Þú mátt ekki spila bara skyndisóknarbolta þegar þú ert með svona góðan leikmannahóp í höndunum," svaraði Klopp, og ræddi svo um atvikið sjálft.
„Diogo Jota er með fótinn hátt uppi en hann er ekki að reyna að fara í hausinn á honum. Ég heyrði að Oliver Skipp hefði getað fengið rautt spjald fyrr í leiknum. Talaði Ryan um það líka?
„Það er fáránlegt að vilja Diogo Jota út af vellinum, hugsaðu um aðra hluti."




