Mason brjálaður: Vorum miklu betri - Augljóst rautt spjald


Mynd: EPA


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Ryan Mason var sársvekktur eftir 4-3 tap Tottenham á útivelli gegn Liverpool í dag. Leikurinn var gríðarlega skemmtilegur og réðist seint í uppbótartíma eftir jöfnunarmark frá Richarlison og sigurmark frá Diogo Jota.
Tottenham lenti þremur mörkum undir á fyrsta stundarfjórðungi leiksins en spilaði svo frábærlega og náði að koma til baka. Mason segir að sínir menn hafi ekki verðskuldað að tapa þessum leik, enda hafi þeir verið talsvert sterkari aðilinn á vellinum.
„Ég er miður mín. Raunveruleikinn er sá að liðið sem skapaði flestu færin tapaði leiknum. Við vorum talsvert sterkara liðið á vellinum í dag," sagði Mason. „Það má ekki byrja úrvalsdeildarleiki með þessum hætti. Við gerðum okkur erfitt fyrir með að gefa þeim fjögur mörk í þessum leik. Þetta er algjörlega ömurlegt.
„Við vorum vel undirbúnir fyrir þennan leik, í hvert skipti sem við fengum boltann vorum við hættulegir. Við sköpuðum fullt af færum, sérstaklega í seinni hálfleik, og hefðum átt að skora nokkur mörk í viðbót."
Mason er ósáttur með að Diogo Jota hafi verið inni á vellinum þegar hann skoraði sigurmark Liverpool á 94. mínútu. Hann segir að leikmaðurinn hafi átt að fjúka af velli korteri fyrr þegar hann fór með takkana í hausinn á Oliver Skipp en fékk aðeins gult spjald fyrir háskaleik.
„Þetta er eitt augljósasta rauða spjald sem ég hef séð. Það er erfitt að kyngja þessu. Ég skil ekki hvernig þetta fór framhjá dómarateyminu, það er ómögulegt. Það er galið að þú getir stefnt heilsu leikmanns í hættu með þessum hætti. Þetta er ákvörðun sem gæti hafa gert herslumuninn á því hvort liðið sigraði leikinn.
„Það er erfitt fyrir mig að skilja þessa ákvörðun og mig langar að heyra útskýringu. Ég sá þetta gerast í rauntíma og maður fann strax á sér að þetta var rautt spjald. Myndbandsdómarinn fær þetta meira að segja endursýnt. Óskiljanleg ákvörðun."
Sjá einnig:
Sjáðu atvikið: Átti Diogo Jota að vera fokinn útaf?


Mynd: EPA




