Emil Hallfreðsson spilaði síðasta hálftímann og skoraði fyrir FH þegar liðið lagði Fram að velli í æfingaleik í Kaplakrika í dag. Björn Daníel Sverrisson var einnig á skotskónum í 2-0 sigri FH-inga.
Emil hefur verið að æfa með FH-ingum síðustu vikur, en það er spurning hvort að hann spili með liðinu í sumar. Hörður Ingi Gunnarsson, sem kom frá ÍA í vikunni, spilaði seinni hálfleikinn með FH og Pétur Viðarsson, sem er búinn að taka skóna fram af hillu, kom inn á í síðari hálfleik.
Leiknir Fáskrúðsfirði burstaði Hött/Huginn, Leiknir Reykjavík vann stórsigur í Breiðholtsslag og þá skildu Grindavík og Fjölnir jöfn í markaleik.
Hér að neðan má sjá staðfest úrslit úr æfingaleikjum sem eru búnir í dag.
Leiknir F. 4 - 0 Höttur/Huginn
Mörk Leiknis: Unnar Ari Hansson, Jesús „Chechu“ Meneses, Arek Grzelak og Kifah Mourad.
FH 2 - 0 Fram
1-0 Björn Daníel Sverrisson
2-0 Emil Hallfreðsson
Leiknir R. 4 - 0 ÍR
Mörk Leiknis: Sjálfsmark, Daníel Finns Matthíasson, Sólon Breki Leifsson, Hjalti Sigurðsson.
Grindavík 3 - 3 Fjölnir
Mörk Grindavíkur: Aron Jóhannsson, Elias Tamburini og Oddur Ingi Bjarnason.
Mörk Fjölnis: Jón Gísli Ström, Sigurpáll Mellberg Pálsson og Arnór Breki Ásþórsson.
Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet
Athugasemdir