Steven Gerrard, goðsögn Liverpool, segist skilja ákvörðun félagsins að reka Arne Slot. Hann segir þetta vera rétta tímapunktinn til þess að breyta um stefnu.
Slot var rekinn í morgun eftir tveggja ára starf hjá félaginu.
Liverpool mun spila í Meistaradeildinni á næstu leiktíð, en óaðlaðandi fótbolti Slot og slæmt samband hans við reynslumikla leikmenn félagsins urðu honum að falli.
Gerrard, sem er spekingur hjá TNT Sports, var fenginn til að ræða ákvörðun Liverpool, en hann segir hana ekki koma sér á óvart.
„Ég er ekki hissa en ég er miður mín fyrir hönd Arne Slot því hann vann ótrúlegt starf á sínu fyrsta ári. Það var erfitt verkefni að taka við af Jürgen Klopp og stórt skarð að fylla, en honum tókst það ágætlega.“
„Það er ótrúlega erfitt að vinna ensku úrvalsdeildina og ég ætti að vita það betur en flestir. Það má því ekki gleyma því að honum tókst það á sínu fyrsta ári. Hann fer í sögubækurnar og verður munað að eilífu.“
„Að því sögðu voru síðustu tíu leikir tímabilsins, og í raun stór hluti tímabilsins, ekkert í líkingu við það sem Liverpool á að vera. Það var erfitt að horfa á leikstíl liðsins á köflum. Þetta var sundurlaust og brotið. Ég var hissa og í sjokki þegar ég fékk fyrst fréttirnar en þegar maður greinir þetta almennilega var þetta líklega rétti tíminn.“
„Við höfum allir verið nógu lengi í leiknum til að vita hvernig ferlið virkar og það hefði komið mér verulega á óvart ef þeir hefðu tekið þessa ákvörðun án þess að vita hver ætti að koma næstur inn. Liverpool vinnur ekki þannig. Liverpool er skipulögð vél og hefur verið það í langan tíma.“
„Þetta er rétti tíminn því tímabilið er búið. Nýr stjóri fær undirbúningstímabilið og tækifæri til að kaupa leikmenn. Þetta er kannski ekki besti tíminn fyrir nýjan stjóra að koma inn, endurstilla alla og fá alla til að róa í sömu átt, en eins og ég segi þá kæmi það mér verulega á óvart ef stjórnin hefði allt í einu byrjað að leita að arftaka hans fyrir þremur eða fjórum tímum.“
„Já, mögulega. Hann hefur unnið stórkostlegt starf hjá Bournemouth og leikstíll hans hentar Liverpool. Liverpool er mjög heillandi starf fyrir bestu þjálfara heims, ef við sleppum því að tala í kringum hlutina, þannig að hann verður ekki eina nafnið í pottinum.“
„En tengsl hans við Bournemouth og þá sem komu þaðan til Liverpool í stjórnina skipta líka máli. Þeir þekkja hann vel. Það eru líklega önnur nöfn þarna úti sem vilja fá þetta starf. Þetta er risastórt starf í fótboltaheiminum,“ sagði Gerrard.



