Víkingur vann 6-4 sigur á Þór/KA í Bestu deild kvenna á Akureyri í dag. Fótbolti.net ræddi við Einar Guðnason, þjálfara liðsins, eftir leikinn.
Lestu um leikinn: Þór/KA 4 - 6 Víkingur R.
„Þetta var mjög skrítið. Þrjú stig er það mikilvægasta sem við komum til að sækja hingað. 4-0 yfir í hálfleik og skot í slá þar af auki. Við vorum með stjórn í seinni hálfleik en svo fara detta inn mörk og endar í fjórum mörkum sem er alltof mikið," sagði Einar.
Víkingur komst í 6-1 áður en Þór/KA skoraði síðustu þrjú mörk leiksins.
„Hvað hefði gerst ef við hefðum ekki skorað sex? Ég veit það ekki. Frábært að skora sex mörk, ekki svo gott að fá á sig fjögur."
„Það var ekki meðvitað að bakka. Ætluðum að halda áfram í því sama og vera agaðar."























