Leao fáanlegur á lægra verði - Bernardo bíður eftir Barcelona - Framherji Frankfurt eftirsóttur
Óskar Smári eftir sigurinn: „Ætli ég fari ekki bara til Tenerife í tvær vikur“
Jón Óli: Bjartsýnn á Allison og feginn með frábæra byrjun
Anton Ingi: Það opnuðust flóðgáttir í vörninni
Guðni Eiríks: Ég kenndi henni þetta í 8. flokki
Einar Guðna: Þetta var mjög skrítið
Tekur tapið á sig - „Þór/KA mun komast upp úr þessu"
Kennie: Líður eins og ég sé 25 ára
Ólafur Ingi: Þurfum að vinna í andlega þættinum
Rúnar Kristins: Búnir að vinna í þessu í tvö og hálft ár
Svekktur fyrirliði Vals: Vorum ekki nógu góðar til að verðskulda sigur
Lárus Orri: Þá ertu annaðhvort í fallbaráttu eða í baráttu um Evrópusæti
Jói Kalli: Auðvitað er þetta á minni ábyrgð
Böddi: Hjálpaði til að FH var í einhverjum nýjum lit af búning
Skoraði sigurmarkið og grínaðist með samherjann - „Rósey hendir einhverju góðu á hana“
Ray Anthony: Grenjum í kvöld
Maggi: Ákall á Mosfellinga
Brynjar Björn: Það er klárt brot á Óla
Heimir Guðjóns: Hann á skilið freyðivín frá mér
Badu: Ég held að ástæðan sé mun einfaldari en metnaðarleysi
„Þeir skapa nánast ekki færi í fyrri hálfleik, skora samt tvö mörk úr þessum hornum sínum"
   lau 30. maí 2026 17:30
Hafþór Örn Laursen
Guðni Eiríks: Ég kenndi henni þetta í 8. flokki
Kvenaboltinn
Guðni Eiríksson, þjálfari FH
Guðni Eiríksson, þjálfari FH
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðni Eiríksson, þjálfari FH, var að vonum sáttur eftir að FH sigraði Fram sannfærandi 6-2 í dag í 7. umferð Bestu Deildar kvenna.

Lestu um leikinn: FH 6 -  2 Fram

„Eins og alltaf eftir sigurleiki, þá líður mér mjög vel. Leikurinn var kaflaskiptur hjá FH, við vorum slök á mörgum sviðum í fyrri hálfleik. Við fórum svo vel yfir hlutina í hálfleik, gerðum breytingar og allir stigu upp.''

Eins og Guðni sagði, fannst honum leikurinn kaflaskiptur, en eftir að Nia Raisa kom inná breyttist leikurinn algjörlega og hún skoraði þrennu.

„Þegar Nia er á sínum degi þá er gríðarlega mikilvægt að hafa hana. Þetta er vonandi það sem koma skal hjá henni. Hún sýndi þá takta sem við vitum að býr í henni og ég er viss um að þetta er eitthvað sem hún mun byggja ofan á í næstu leikjum.''

Ingibjörg Magnúsdóttir átti annan stórleik í röð, en hún var valinn maður leiksins. Hún náði tveimur stoðsendingum, skoraði fyrsta mark FH og fiskaði vítið sem Nia kláraði þrennuna sína úr. Hún var valin sterkust í 6. umferð eftir 2-3 sigur gegn Breiðablik.

„Ég kenndi henni þetta allt í 8. flokki. Sjálfstraustið hennar er upp í himinskautum og það er helvíti góður kokteill þegar leikmaður hvort hann sé ungur eða gamall sé með þetta sjálfstraust og gæði í ofanálag.''

Það hefur verið mikið ritað og rætt um framtíð Ingibjargar, og þá hvort hún muni jafnvel fara út í atvinnumenskuna eftir þetta tímabil.

„Ingibjörg mun alltaf fara út í atvinnumennsku og það er skýr stefna FH að hún verði atvinnumaður uppalin úr FH þegar tíminn er réttur.''

Eftir þessa umferð er tveggja vikna frí, en næsti leikur FH verður 13. júní gegn Víkingi á Víkingsvelli.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum fyrir ofan.

Slapp
banner
banner
banner