ÍBV tapaði 2-0 fyrir Stjörnunni á Samsungvellinum í dag en þrátt fyrir tapið var Jón Óli Daníelsson þjálfari liðsins sáttur við baráttuna sem hans lið sýndi við erfiðar aðstæður.
Lestu um leikinn: Stjarnan 2 - 0 ÍBV
ÍBV mætti til leiks með afar ungan varamannabekk eftir að hafa misst nokkra lykilleikmenn úr leik vegna meiðsla. Jón Óli segir þó stemninguna í hópnum áfram góða.
„Það er alltaf stemming og alls ekki erfitt. Þetta eru bara smá áföll og nú kemur tveggja vikna pása í leiki og þegar við mætum til leiks aftur að þá vonandi eru einhverjir leikmenn komnir til baka úr meiðslum.“
Aðspurður hvort landsleikjahléið gæti skilað Fridrikku Clementsen og Allison Lowrey aftur til leiks var Jón Óli bjartsýnni á þá síðarnefndu.
„Allavega Allison, svona minni líkur á Fridrikku. Kannski vitum meira eftir svona viku með hana, hvernig næsta vika þróast hjá henni. Ég á ekki von á öðru en framherjinn verði klár.“
Þrátt fyrir meiðslavandræði hefur ÍBV þurft að treysta á unga leikmenn og Jón Óli hefur fulla trú á þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í efstu deild.
„Við eigum mikið af efnilegum stelpum sem bara þora að stökkva út í djúpu laugina og ef þær myndu ekki þora því þá myndum við bara henda þeim þangað. Það er efniviður til staðar í Vestmannaeyjum.“
Fram undan er landsleikjahlé og segir Jón Óli að það verði nýtt bæði til hvíldar og vinnu á æfingasvæðinu.
„Við missum náttúrulega alla Lettana í burtu, þær fara allar í landsleikin. Við munum í fyrsta lagi byrja á að hvíla okkur og hleypa fólki í burtu. Svo munum við nota seinni vikuna eins vel og mögulegt er til að fara yfir hluti sem hafa ekki gengið nógu vel hjá okkur.“
ÍBV byrjaði tímabilið af krafti og vann fyrstu fjóra leiki sína. Jón Óli viðurkennir að jafn góð byrjun hafi komið sér örlítið á óvart í ljósi þeirra skakkafalla sem liðið varð fyrir snemma sumars.
„Ég sá nú kannski ekki alveg fyrir 12 stig af 12 mögulegum og miðað við skakkaföllin sem komu strax þá jú kemur mér örlítið á óvart. Eftir á hyggja þá segi ég að sem betur fer fengum við þessi 12 stig í þessari góðu byrjun og svo snýst þetta náttúrlega núna bara að á meðan við erum í manneklu að halda sjó og gera eins vel og mögulegt er.“
Sjáðu viðtalið í heild hér í spilaranum að ofan.

























