PSG vann Meistaradeildina annað árið í röð eftir sigur á Arsenal í úrslitaleiknum eftir vítaspyrnukeppni.
Brasilíski varnarmaðurinn Gabriel tók síðustu spyrnuna og skaut yfir markið og það tryggði PSG sigurinn.
Brasilíski varnarmaðurinn Gabriel tók síðustu spyrnuna og skaut yfir markið og það tryggði PSG sigurinn.
Gabriel og aðrir Arsenal-menn voru eðlilega mjög vonsviknir og stóðu stjarfir á vellinum. Á meðan hlupu PSG-menn út um allan völl í sæluvímu.
Það var þó einn leikmaður PSG, Marquinhos, landi Gabriel sem fór beint til hans og hughreysti hann.
Gabriel og Marquinhos eru báðir í brasilíska landsliðshópnum sem fer á HM í sumar.
PSG captain Marquinhos went straight up to his Brazil team-mate Gabriel after the Arsenal star's decisive penalty miss ??????????#UCLfinal pic.twitter.com/jSxfeCkvTk
— Mirror Football (@MirrorFootball) May 30, 2026





