Þór/KA tapaði 6-4 í ótrúlegum leik gegn Víkingi í Bestu deild kvenna í dag. Þór/KA er á botni deildarinnar með tvö stig eftir sjö umferðir. Fótbolti.net ræddi við Aðalstein Jóhann Friðriksson, þjálfara Þór/KA, eftir leikinn.
Lestu um leikinn: Þór/KA 4 - 6 Víkingur R.
Þór/KA var 4-0 undir í hálfleik og staðan var 6-1 þegar liðið skoraði þrjú síðustu mörk leiksins.
„Ég er mjög sár út í sjálfan mig að við hefðum ekki byrjað leikinn betur, það er stóra atriðið í þessu. Ég á ekki hrós skilið fyrir að snúa leiknum eitthvað," sagði Alli Jói.
„Ég ber ábyrgð á frammistöðu og gengi Þór/KA, það er á mér. Þór/KA mun komast upp úr þessu, það er engin spurning."
Besta kvenna
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. Breiðablik | 7 | 6 | 0 | 1 | 21 - 8 | +13 | 18 |
| 2. FH | 7 | 5 | 1 | 1 | 18 - 9 | +9 | 16 |
| 3. ÍBV | 7 | 4 | 1 | 2 | 13 - 13 | 0 | 13 |
| 4. Þróttur R. | 7 | 4 | 0 | 3 | 11 - 7 | +4 | 12 |
| 5. Stjarnan | 7 | 3 | 2 | 2 | 10 - 7 | +3 | 11 |
| 6. Víkingur R. | 7 | 3 | 0 | 4 | 14 - 17 | -3 | 9 |
| 7. Grindavík/Njarðvík | 7 | 2 | 2 | 3 | 8 - 13 | -5 | 8 |
| 8. Valur | 7 | 2 | 1 | 4 | 7 - 10 | -3 | 7 |
| 9. Fram | 7 | 1 | 1 | 5 | 8 - 18 | -10 | 4 |
| 10. Þór/KA | 7 | 0 | 2 | 5 | 11 - 19 | -8 | 2 |






















