Liverpool hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem það þakkar Arne Slot fyrir vel unnin störf, en að það hafi þurft að taka þá erfiðu ákvörðun og breyta um stefnu.
Arne Slot var rekinn frá félaginu eftir frammistöðuviðtal Hollendingsins í dag.
Hann fékk sjálfur fregnirnar í morgun en Liverpool leitar nú að arftaka hans.
Félagið sendi frá sér langa yfirlýsingu þar sem það þakkar honum fyrir hans störf og segir hann ávallt velkominn aftur á Anfield.
„Þetta var erfið ákvörðun fyrir okkur að taka, það verður bara að segjast. Framlagið sem Arne hefur skilað til Liverpool á þessum tíma sem hann hefur verið hér hefur verið gríðarlegt, þýðingarmikið og fyrst og fremst mikilvægt fyrir bæði okkur og stuðningsmenn félagsins.“
„Þakklæti okkar til hans og allt sem hann hefur áorkað er ómælanlegt þar sem árangurinn byggðist á vinnusemi, vandvirkni og sérþekkingu sem undirstrikaði enn frekar þá skoðun okkar að hann sé leiðtogi á sínu sviði.“
„Frá því við hittum Arne fyrst þá var það ljóst í byrjun að hann er ekki bara einstaklingur sem tekur ábyrgð heldur fagnar henni. Þetta var skýrt þegar hann samþykkti að taka við sem stjóri Liverpool þegar hann leiddi okkur að Englandsmeistaratitlinum og á nýliðnu tímabili þar sem hann tókst á við svakalegar áskoranir og byrðar.“
„Á sama tíma höfum við í sameiningu komist að þeirri niðurstöðu að þörf er á breytingum til þess að félagið geti haldið áfram að þróast. Við viljum hins vegar undirstrika það að þessi ákvörðun var ekki tekin af léttúð. Þvert á móti.“
„Við viljum nýta tækifærið til þess að lýsa yfir þakklæti okkar til Arne, sem mun alltaf eiga sérstakan stað í sögu þessa fótboltafélags sem stjórinn sem færði Liverpool 20. deildartitilinn.“
„Það afrek var enn merkilegra þar sem honum tókst að gera það á fyrsta tímabili sínu sem stjóri félagsins og var byggt á ótrúlegri þjálfun og leiðtogahæfni á hverjum einasta degi.“
„Hann leiddi einnig félagið í gegnum einn erfiðasta kafla sem hægt er að ímynda sér eftir fráfall Diogo Jota. Samkenndin og mannúðin sem hann sýndi í gegnum þann tíma sagði allt sem segja þarf um hann sem manneskju.“
„Því getum við aðeins óskað Arne velfarnaðar á næsta stigi hans á þjálfaraferlinum þar sem við gerum fastlega ráð fyrir því að hann muni halda áfram að ná árangri. Við gerum það í þeirri vissu að arfleifð hans hjá Liverpool sé tryggð og verði enn merkingarmeiri á komandi árum og áratugum.“
„Engu að síðu er niðurstaða okkar byggð á þeirri trú að best sé að bregðast við þróun liðsins með breyttri stefnu. Það dregur ekki úr því starfi sem Arne hefur unnið hér og virðingunni sem við höfum fyrir honum. Það endurspeglar ekki heldur hæfileika hans, heldur aðeins þörf félagsins á annarri nálgun.“
„Arne kveður með þakklæti okkar, með Englandsmeistaratitli og vitneskju um að hann og fjölskylda hans verða alltaf velkomin aftur á Anfield,“ segir í yfirlýsingu FSG.


