30.06.13 - 15:30
Brynjar Ingi Erluson
Anthony Martial til Monaco (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Franska stórveldið AS Monaco hefur fest kaup á franska ungstirninu Anthony Martial frá Lyon.
Martial, sem er 17 ára gamall, spilaði fyrstu leiki sína með aðalliði Lyon á síðustu leiktíð, en hann á fjölmarga leiki að baki með yngri landsliðum Frakklands og þykir meðal efnilegri leikmönnum í landinu.
Miklar vonir eru bundnar við Martial, en félagið hefur staðfest komu hans og gerði hann þriggja ára samning við Monaco.
Það er nóg til í buddunni hjá Monaco, en félagið hefur þegar fest kaup á Radamel Falcao, Joao Moutinho, Ricardo Carvalho og James Rodriguez.