Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 30. júní 2022 12:24
Elvar Geir Magnússon
Bikardráttur karla: Kópavogsslagur og Víkingur mætir KR
Blikar fara í Kórinn.
Blikar fara í Kórinn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Nú í hádeginu var dregið í 8-liða úrslit Mjólkurbikars karla. Ríkjandi Íslands- og bikarmeistarar Víkings munu mæta KR.

Það verður Kópavogsslagur í Kórnum og 2. deildarlið Ægis mun fara norður á Akureyri og leika gegn KA.

Þá fá Kórdrengir heimaleik gegn FH í Safamýri.

8-liða úrslit Mjólkurbikars karla.
Víkingur - KR
KA - Ægir
HK - Breiðablik
Kórdrengir - FH

Evrópuliðin gætu spilað sína leiki á sunnudeginum um verslunarmannahelgina. Nánar um það á eftir.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner